Hinn 15 ára gamli Morgan Spencer tók sig til á dögunum og gerði magnað myndband þar sem hann endurgerir frægar kvikmynadsenur með LEGO-köllum. Í myndbandinu eru m.a. atriði úr kvikmyndum á borð við Titanic, Pulp Fiction og Singing’ in the Rain.
Spencer notast við við svokallaða „stop motion“ tækni, en þá eru ljósmyndir notaðar, þeim er síðan skeytt saman og mynda þá hreyfimynd. LEGO-kallarnir fá sitt eigið líf þegar hver hreyfing er brotin niður í ramma sem eru myndaðir og settir saman í runu. Þegar myndin hefur verið sett saman og sýnd virðast persónur myndarinnar hreyfast af eigin vilja.
Hér að neðan má sjá þetta stórskemmtilega myndband sem ber heitið Brick Flicks.