Transformers spólar til baka

Í nýjustu Transformers myndinni, sem frumsýnd var hér á Íslandi í gær, förum við aftur í tímann, allt aftur til tíunda áratugar tuttugustu aldarinnar. Sé Transformers myndunum raðað á tímalínu væri þessi nýja mynd, Transformers: Rise of the Beast, önnur í röðinni, næst á eftir Bumblebee forsögunni frá árinu 2018.

Transformers: Rise of the Beast er sjöunda Transformers myndin en framleiðandi hennar hefur þegar lýst yfir að myndin sé sú fyrsta í þríleik.

Vélmenni breytast í dýr

Í myndinni er bryddað  upp á þeirri nýjung að vélmenni geta breyst í dýr, eins og sporðdreka, blettatígur og górillu svo eitthvað sé nefnt.

Eins og sagt er frá í þessu myndbandi hafa dýravélmenni komið oft við í sögu Transformers teiknimynda og teiknimyndasagna, eins og t.d. í Transformers Beast Wars.

Dýrin ættu því ekki að koma aðdáendum myndaflokksins algjörlega í opna skjöldu.

Einnig kannast kannski margir við leikföng sem gerð voru eftir þessum dýrum.

Sem fyrr sagði er myndin snemma í tímalínunni, og myndirnar Transformers, Transformers Rise of the Fallen, Dark of the Moon og The Last Knight gerast allar síðar í tíma.

Einhverjum gæti fundist þetta flókið en þá er um að gera að horfa á áðurnefnt myndband til að koma sér inn í heila málið.

Myndirnar eru svo hér fyrir neðan í útgáfuröð ásamt stiklunni úr þessari nýjustu:

Transformers

Transformers 2007

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 144 mín12 áraIMDb 7.1

Fyrir löngu síðan, á fjarlægri plánetu, Cybertron, var háð stríð á milli hinna göfugu Autobots ( leiðtogi þeirra var hinn vitri Optimus Prime ) og hinna illu Decepticons ( leiðtogi þeirra var hinn ógnvænlegi Megatron )…

Gefa einkunn

Transformers: Revenge of the Fallen

Transformers: Revenge of the Fallen 2009

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 150 mín12 áraIMDb 6.0

Eftir hrikalega atburði fyrstu myndarinnar vill Sam ekkert frekar en að lifa eðlilegu lífi í háskólanum með kærustu sinni, Mikaelu. Optimus Prime, leiðtogi Autobots-vélanna, flytur honum þær fréttir að friðurinn muni…

Gefa einkunn

Transformers: Dark of the Moon

Transformers: Dark of the Moon 2011

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 153 mín12 áraIMDb 6.2

Í þriðju Transformers-myndinni, Dark of the Moon, komast hin góðviljuðu Autobot-vélmenni, sem hafa unnið hörðum höndum að því að vernda mannkynið, að því að hin illskeyttu Decepticon vélmenni ætla að taka yfir Jörðina…

Gefa einkunn

Transformers: Age of Extinction

Transformers: Age of Extinction 2014

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 165 mín12 áraIMDb 5.6

Fjórða Transformers-myndin, Age of Extinction, gerist fjórum árum eftir atburðina og uppgjörið í síðustu mynd, Dark of the Moon. Mark Wahlberg leikur vélvirkja og einstæðan föður tveggja barna sem lifir á því að gera…

Gefa einkunn

Bumblebee

Bumblebee 2018

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 113 mín12 áraIMDb 6.7

Sagan segir upprunasögu vélmennisins Bumblebees. Hin átján ára gamla Charlie Watson er nýbúin að fá bílprófið og dreymir um að eignast bíl. Peningar fyrir honum eru hins vegar af skornum skammti og því hrósar hún happi…

Gefa einkunn

Transformers: The Last Knight

Transformers: The Last Knight 2017

Spenna, Spennutryllir, Vísindaskáldskapur · 149 mín12 áraIMDb 5.2

Optimus Prime finnur heimaplánetu sína, Cybertron, sem nú er dauð, og hann kemst að því að hann ber ábyrgð á ástandinu. Hann finnur leið til að lífga plánetuna við, en til að gera það, þá þarf hann að finna helgigrip…

Gefa einkunn

Transformers: Rise of the Beasts

Transformers: Rise of the Beasts 2023

Spenna, Vísindaskáldskapur, Ævintýri · 117 mín12 áraIMDb 6.0

Á tíunda áratug síðustu aldar gengur nýtt flokksbrot Transformers - the Maximals vélmenna, til liðs við Autobots þegar skelfilegar geimverur ráðast á Jörðina. Noah, ungur og skarpur drengur frá Brooklyn, og Elena…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn