Tilnefningar til Eddunnar 2026 voru kynntar föstudaginn 10. apríl og ljóst er að samkeppnin verður hörð þegar verðlaunin verða afhent í lok maí. Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar í ár, alls 13 talsins, en Eldarnir fylgja fast á eftir með 12.
Í flokki leikins sjónvarpsefnis eru það Felix & Klara og King and Conqueror sem skera sig úr með 11 tilnefningar hvor sería, en Vigdís kemur þar næst með 9. The Damned er einnig áberandi með 8 tilnefningar.
Eitt sem vekur athygli í ár er hversu alþjóðlegur svipur er á leikflokkum verðlaunanna. Margir erlendir leikarar eru meðal þeirra sem hljóta tilnefningu og það sýnir vel hversu alþjóðleg íslensk kvikmynda og sjónvarpsgerð er orðin.
Verðlaunin hafa verið veitt í fjölda ára og eru einn stærsti viðburður ársins í íslenskri kvikmynda og sjónvarpsgerð. Eftir breytingar síðustu ár nær Eddan nú aftur til leikins sjónvarpsefnis og gerir verðlaunin breiðari og fjölbreyttari.
Alls verða veitt 35 verðlaun fyrir kvikmynda og sjónvarpsverk sem frumsýnd voru á árinu 2025. Auk þess verða heiðursverðlaun afhent og viðurkenning fyrir uppgötvun ársins.
Áhugi á verðlaununum sést vel í fjöldanum. Alls bárust 51 verk og 256 innsendingar og í ár var bætt við 15 nýjum flokkum fyrir leikið sjónvarpsefni. Innsendar voru þrettán heimildamyndir, sjö heimildastuttmyndir, ellefu stuttmyndir, sex kvikmyndir í fullri lengd, tíu leiknar sjónvarpsþáttaseríur og sjö erlendar kvikmyndir.
Alls sátu 44 einstaklingar í valnefndum sem völdu tilnefningarnar. Meðlimir akademíunnar kjósa svo sigurvegara og fer kosningin fram í maí. KPMG sér um talningu atkvæða.
Af öllum verkunum í ár er það þó Ástin sem eftir er sem stendur upp úr. Myndin er tilnefnd sem kvikmynd ársins og kemur víða við í helstu flokkum, meðal annars fyrir leikstjórn, handrit, kvikmyndatöku og leik.
Eldarnir eru einnig mjög áberandi og í sjónvarpi virðist vera hörð barátta fram undan milli Felix & Klara, King and Conqueror og Vigdís.
Flestar tilnefningar í ár
Ástin sem eftir er með 13 tilnefningar
Eldarnir með 12 tilnefningar
Felix & Klara með 11 tilnefningar
King and Conqueror með 11 tilnefningar
Vigdís með 9 tilnefningar
The Damned með 8 tilnefningar
Helstu flokkar
Kvikmynd ársins
Ástin sem eftir er
Eldarnir
The Damned

Ástin sem eftir er 2025
Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm…

Eldarnir 2025
Anna Arnardóttir, einn helsti eldfjallafræðingur Íslands, stendur frammi fyrir tvennum hamförum: eldgosi sem ógnar öryggi höfuðborgarbúa og ástarsambandi sem gæti eyðilagt hjónaband hennar.

The Damned 2024
Ekkja á nítjándu öld þarf að taka erfiða ákvörðun, einn sérlega erfiðan vetur, þegar skip sekkur skammt frá fátækum íslenskum sveitabæ. Allar tilraunir til að bjarga áhöfninni munu hafa áhrif á matarforða bæjarins, þar…
Leikið sjónvarpsefni ársins
Felix & Klara
King and Conqueror
Vigdís

Felix & Klara 2025
Íslensk leikin þáttaröð um fyrrverandi tollvörðinn Felix sem flyst ásamt eiginkonu sinni, Klöru, í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík. Á meðan Klara nýtur frelsisins rankar Felix við sér í innihaldslausum…

King & Conqueror 2025
The story of a clash that defined the future of a country and a continent for a thousand years. Harold of Wessex and William of Normandy were two men destined to meet at the Battle of Hastings in 1066. These two former…
Heimildamynd ársins
Jörðin undir fótum okkar
Paradís Amatörsins
Strengur

Jörðin undir fótum okkar 2025
Jörðin undir fótum okkar segir frá sólarlagi lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska…

Paradís amatörsins 2025
Á Íslandi, í Paradís Amatörsins, voru alltaf til menn sem tóku upp viðburði í fjölskyldum eða bæjarfélagi – áður en nokkur vissi almennilega til hvers. Í dag eru það ekki lengur viðburðir sem eru skrásettir, heldur…
Erlend kvikmynd ársins
Heldin
It Was Just An Accident
One Battle After Another
Sentimental Value
The Secret Agent

Late Shift 2025
Floria er hjúkrunarfræðingur á skurðdeild svissnesks spítala. Við fylgjumst með henni þar sem hún mætir á kvöldvakt, þar sem er undirmönnun og kapphlaup við tímann.

It Was Just an Accident 2025
Vahid, bílasmiður frá Aserbaídsjan, var eitt sinn fangelsaður af írönskum yfirvöldum. Á meðan hann afplánaði dóminn var hann yfirheyrður með bundið fyrir augun. Dag einn kemur maður að nafni Eghbal inn á verkstæði hans…

One Battle After Another 2025
Fyrrum byltingarsinninn Bob lifir í felum utan alfararleiðar, haldinn stöðugu ofsóknaræði og er iðulega í áfengis - eða eiturlyfjavímu. Með honum býr ákveðin og sjálfstæð unglingsdóttir hans Willa. Þegar illur…

Sentimental Value 2025
Tvær systur snúa aftur á æskuheimili sitt þar sem þær hitta föður sinn sem eitt sinn var frægur kvikmyndaleikstjóri. Hann býður annarri þeirra aðalhlutverk í nýrri kvikmynd ... og þá breytist allt.

The Secret Agent 2025
Árið 1977 í Recife snýr Marcelo, tæknisérfræðingur á fimmtugsaldri, aftur heim í miðri kjötkveðjuhátíð til að hitta son sinn og skipuleggja hættulegan flótta undan vökulum augum herforingjastjórnar Brasilíu.
Í leikflokkum kvikmynda vekur athygli að Saga Garðarsdóttir er tilnefnd fyrir Ástina sem eftir er, Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir Eldana, en við ræddum við hana í viðtali á Kvikmyndir.is, og Odessa Young fyrir The Damned. Í flokki leikara í aðalhlutverki eru tilnefndir Björn Hlynur Haraldsson fyrir Fjallið, Joe Cole fyrir The Damned og Sverrir Guðnason fyrir Ástina sem eftir er.
Í sjónvarpsflokkunum eru Jón Gnarr, James Norton og Nikolaj Coster Waldau tilnefndir sem leikari ársins í aðalhlutverki. Í flokki leikkonu í aðalhlutverki eru Elín Hall, Catarina Rebelo og Emily Beecham tilnefndar.
Í flokki leikstjóra eru einnig sterk nöfn. Hlynur Pálmason er tilnefndur fyrir Ástina sem eftir er, Yrsa Roca Fannberg fyrir Jörðina undir fótum okkar og Þórður Pálsson fyrir The Damned.
Í sjónvarpi eru Ragnar Bragason, Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson meðal þeirra sem tilnefnd eru, auk stórs hóps höfunda að baki King and Conqueror.
Það sem stendur upp úr í ár er hversu öflug og fjölbreytt íslensk framleiðsla er um þessar mundir. Hér fara saman kvikmyndir, sjónvarpsseríur og alþjóðleg verkefni sem ná til breiðs hóps áhorfenda.
Edduverðlaunin 2026 verða afhent í lok maí og fram að því verður spennandi að sjá hvort Ástin sem eftir er haldi forystunni eða hvort önnur verk taki fram úr á lokakvöldinu.
Hér fyrir neðan má sjá allar tilnefningar til Eddunnar 2026 í heild sinni.
Allar tilnefningar til Eddunnar 2026
Kvikmynd ársins
Ástin sem eftir er
Eldarnir
The Damned
Leikið sjónvarpsefni ársins
Felix & Klara
King and Conqueror
Vigdís
Leikari ársins í aðalhlutverki kvikmynd
Björn Hlynur Haraldsson fyrir Fjallið
Joe Cole fyrir The Damned
Sverrir Guðnason fyrir Ástina sem eftir er
Leikkona ársins í aðalhlutverki kvikmynd
Odessa Young fyrir The Damned
Saga Garðarsdóttir fyrir Ástina sem eftir er
Vigdís Hrefna Pálsdóttir fyrir Eldana
Leikari ársins í aðalhlutverki sjónvarp
James Norton fyrir King and Conqueror
Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru
Nikolaj Coster Waldau fyrir King and Conqueror
Leikkona ársins í aðalhlutverki sjónvarp
Catarina Rebelo fyrir Heimaey
Elín Hall fyrir Vigdísi
Emily Beecham fyrir King and Conqueror
Leikstjóri ársins kvikmynd
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Yrsa Roca Fannberg fyrir Jörðina undir fótum okkar
Þórður Pálsson fyrir The Damned
Leikstjóri ársins sjónvarp
Baltasar Kormákur og fleiri fyrir King and Conqueror
Ragnar Bragason fyrir Felix & Klöru
Tinna Hrafnsdóttir og Björn Hlynur Haraldsson fyrir Vigdísi
Aðrir flokkar
Leikari ársins í aukahlutverki kvikmynd
Anders Mossling fyrir Ástina sem eftir er
Ingvar E. Sigurðsson fyrir Ástina sem eftir er
Jóhann G. Jóhannsson fyrir Eldana
Leikkona ársins í aukahlutverki kvikmynd
Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir Ástina sem eftir er
María Heba Þorkelsdóttir fyrir Eldana
Leikari ársins í aukahlutverki sjónvarp
Eddie Marsan fyrir King and Conqueror
Ivo Canelas fyrir Heimaey
Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Brján
Leikkona ársins í aukahlutverki sjónvarp
Anna Svava Knútsdóttir fyrir Heimaey
Juliet Stevenson fyrir King and Conqueror
Lára Jóhanna Jónsdóttir fyrir Reykjavík Fusion
Handrit ársins kvikmynd
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Jamie Hannigan fyrir The Damned
Ugla Hauksdóttir og Marcus Englmair fyrir Eldana
Handrit ársins sjónvarp
Ágústa M Ólafsdóttir og Björg Magnúsdóttir fyrir Vigdísi
Ragnar Bragason og Jón Gnarr fyrir Felix & Klöru
Óttar Martin Norðfjörð og fleiri fyrir Reykjavík 112
Tónlist ársins kvikmynd
Harry Hunt fyrir Ástina sem eftir er
Helgi Svavar Helgason fyrir Fjallið
Herdís Stefánsdóttir fyrir Eldana
Tónlist ársins sjónvarp
Eðvarð Egilsson fyrir Reykjavík 112
Mugison fyrir Felix & Klöru
Veigar Margeirsson fyrir Reykjavík Fusion
Kvikmyndataka ársins kvikmynd
Eli Arenson fyrir The Damned
Hlynur Pálmason fyrir Ástina sem eftir er
Ollie Downey fyrir Eldana
Kvikmyndataka ársins sjónvarp
Bergsteinn Björgúlfsson fyrir King and Conqueror
Eli Arenson fyrir Vigdísi
Óttar Guðnason fyrir Reykjavík Fusion
Klipping ársins kvikmynd
Daníel Bjarnason fyrir Voru allir hér
Julius Krebs Damsbo fyrir Ástina sem eftir er
Kristján Loðmfjörð fyrir Eldana
Klipping ársins sjónvarp
Logi Ingimarsson og Gunnar B Guðbjörnsson fyrir Reykjavík 112
Úlfur Teitur Traustason fyrir Reykjavík Fusion
Valdís Óskarsdóttir fyrir Felix & Klöru
Hljóð ársins kvikmynd
Björn Viktorsson fyrir Jörðina undir fótum okkar
Gunnar Árnason fyrir Fjallið
Michał Fojcik fyrir Eldana
Hljóð ársins sjónvarp
Björn Viktorsson fyrir Felix & Klöru
Gunnar Árnason fyrir Vigdísi
Kjartan Kjartansson og Huldar Freyr Arnarson fyrir King and Conqueror
Leikmynd ársins kvikmynd
Frosti Friðriksson fyrir The Damned
Heimir Sverrisson fyrir Eldana
Frosti Friðriksson fyrir Ástina sem eftir er
Leikmynd ársins sjónvarp
Guðni Rúnar Gunnarsson fyrir Reykjavík Fusion
Heimir Sverrisson fyrir Vigdísi
Hulda Helgadóttir fyrir Felix & Klöru
Búningar ársins kvikmynd
Helen Beaumont fyrir The Damned
Margrét Einarsdóttir fyrir Eldana
Rebekka Jónsdóttir fyrir Fjallið
Búningar ársins sjónvarp
Helga I Stefánsdóttir fyrir Vigdísi
Helga Rós V Hannam fyrir Felix & Klöru
Margrét Einarsdóttir fyrir King and Conqueror
Gervi ársins kvikmynd
Ásta Hafþórsdóttir og Sophie King fyrir The Damned
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir fyrir Hemmet
Ísak Freyr Helgason fyrir Fjallið
Gervi ársins sjónvarp
Ásta Hafþórsdóttir og fleiri fyrir Felix & Klöru
Josephine Hoy fyrir Vigdísi
Ásta Hafþórsdóttir fyrir King and Conqueror
Brellur ársins kvikmynd
Peter Hjorth, Anders Nyman og Haukur Karlsson fyrir Ástina sem eftir er
Szymon Kania fyrir Eldana
Brellur ársins sjónvarp
Haukur Karlsson fyrir Reykjavík Fusion
Pétur Karlsson fyrir Felix & Klöru
Heimildamynd ársins
Jörðin undir fótum okkar
Paradís Amatörsins
Strengur
Heimildastuttmynd ársins
Musteri minninga
Ósigraður
Póstkort
Stuttmynd ársins
Merki
Tólf
Vonardagur
Barna og unglingaefni ársins
Merki
Tólf
Vonardagur
Erlend kvikmynd ársins
Heldin
It Was Just An Accident
One Battle After Another
Sentimental Value
The Secret Agent













