Edduverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Gullhömrum fyrir helgi en tilgangur verðlaunanna er eins og fram kemur á heimasíðu hátíðarinnar að veita fagfólki í íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf og vera hvatning til áframhaldandi dáða.

Stærsti sigurvegari kvöldsins var kvikmyndin Ástin sem eftir er eftir Hlyn Pálmason sem var valin kvikmynd ársins og hlaut alls sjö verðlaun. Myndin hlaut meðal annars verðlaun fyrir leikstjórn, handrit og kvikmyndatöku, auk leikverðlauna fyrir frammistöðu Sögu Garðarsdóttur, Sverris Guðnasonar og Ídu Mekkínar Hlynsdóttur.

Ástin sem eftir er 2025
Ástin sem eftir er fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm…
Í flokki heimildamynda var Jörðin undir fótum okkar hlutskörpust. Þá var Póstkort valin heimildarstuttmynd ársins, Merki valin stuttmynd ársins og Vonardagur valin barna- og unglingamynd ársins.

Jörðin undir fótum okkar 2025
Jörðin undir fótum okkar segir frá sólarlagi lífsins á hjúkrunarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem tíminn lýtur sínum eigin lögmálum. Myndin er ljóðræn og veitir einstaka innsýn í þetta tímabil lífsins þar sem mennska…
Ástin sem eftir er var þó ekki eina verkið sem fór heim með mörg verðlaun. Eldarnir hlutu sex Edduverðlaun, meðal annars fyrir brellur, búninga, klippingu, leikmynd og tónlist, auk þess sem Jóhann G. Jóhannsson var verðlaunaður fyrir leik í aukahlutverki. The Damned hlaut einnig verðlaun, þar sem Ásta Hafþórsdóttir og Sophie King voru verðlaunaðar fyrir gervi myndarinnar.

Eldarnir 2025
Anna Arnardóttir, einn helsti eldfjallafræðingur Íslands, stendur frammi fyrir tvennum hamförum: eldgosi sem ógnar öryggi höfuðborgarbúa og ástarsambandi sem gæti eyðilagt hjónaband hennar.

The Damned 2024
Ekkja á nítjándu öld þarf að taka erfiða ákvörðun, einn sérlega erfiðan vetur, þegar skip sekkur skammt frá fátækum íslenskum sveitabæ. Allar tilraunir til að bjarga áhöfninni munu hafa áhrif á matarforða bæjarins, þar…
Í sjónvarpsflokkunum var Vigdís hlutskörpust og var valin leikið sjónvarpsefni ársins. Þættirnir hlutu alls sex verðlaun, meðal annars fyrir leikstjórn, leik Elínar Hall í aðalhlutverki, búninga, hljóð og leikmynd.
Felix & Klara kom einnig sterkt inn og hlaut fimm verðlaun. Jón Gnarr var valinn leikari ársins í aðalhlutverki í sjónvarpi fyrir hlutverk sitt, og þættirnir hlutu einnig verðlaun fyrir handrit, klippingu, gervi og tónlist.

Felix & Klara 2025
Íslensk leikin þáttaröð um fyrrverandi tollvörðinn Felix sem flyst ásamt eiginkonu sinni, Klöru, í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík. Á meðan Klara nýtur frelsisins rankar Felix við sér í innihaldslausum…
Reykjavík Fusion hlaut þrenn verðlaun. Lára Jóhanna Jónsdóttir var verðlaunuð fyrir leik í aukahlutverki, og þættirnir hlutu einnig verðlaun fyrir brellur og kvikmyndatöku. Þá fékk Reykjavík 112 verðlaun fyrir handrit sjónvarpsefnis, og Steinþór Hróar Steinþórsson hlaut verðlaun fyrir aukahlutverk í Brjáni.

Reykjavík Fusion 2025
Serían fjallar um frá matreiðslumeistarann Jónas sem er að reyna að snúa við blaðinu og vinna til baka traust fjölskyldunnar eftir fangelsisvist. Þegar allar dyr virðast lokaðar endar hann á að þiggja vafasama peninga…

Reykjavík 112 2025
Kona er myrt á hrottalegan hátt fyrir framan barnunga dóttur sína sem er eina vitnið. Rannsóknarlögreglumaðurinn Huldar fær barnasálfræðinginn Freyju til liðs við sig, en þau eiga sér flókna fortíð. Saman reyna þau að…
Á meðal annarra verka sem komu við sögu á verðlaunahátíðinni voru Fjallið, Heimaey, King & Conqueror, Late Shift, It Was Just an Accident, One Battle After Another, Sentimental Value, The Secret Agent og Paradís amatörsins.
Heiðursverðlaun ÍKSA hlaut Þorsteinn Jónsson fyrir áratuga framúrskarandi framlag til íslenskrar kvikmyndalistar. Freyja Kristinsdóttir var valin uppgötvun ársins.






