Skylmingaþrællinn Lucius í nýju Ridley Scott myndinni Gladiator 2 kom sá og sigraði í íslenskum kvikmyndahúsum um síðustu helgi og fór beint á topp íslenska bíóaðsóknarlistans.
Alls komu nálægt 3.700 manns að sjá myndina og tekjur helgarinnar námu 7,8 milljónum króna.
Í öðru sæti er toppmynd síðustu viku, Red One, með hinum geðþekka Dwayne Johnson í aðalhlutverki.
Þriðja sætið féll svo í skaut Skotgríss.
Tekjuhæst með 73 milljónir
Af öðrum myndum er það að segja að tekjuhæsta kvikmyndin á listanum er Aulinn ég 4 en sjötíu og þrjár milljónir hafa komið þar í kassann frá frumsýningu hér á landi.
Sjáðu topplistann í heild sinni hér fyrir neðan: