Marty áfram í fyrsta sæti

Óskarstilnefnda kvikmyndin Marty Supreme er vinsælasta kvikmyndin í bíó á Íslandi aðra vikuna í röð.

Marty Supreme

Marty Supreme 2025

Drama · 150 mín16 áraIMDb 7.5

Í New York á sjötta áratugnum fer borðtennisspilarinn Marty Mauser, ungur maður með draum sem enginn tekur mark á, í gegnum súrt og sætt í leit að frægð og frama.

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Tekjur myndarinnar námu 2,3 milljónum króna um helgina.

Í öðru sæti íslenska bíóaðsóknarlistans er Svampur Sveinsson og félagar sem fara upp um tvö sæti á milli vikna og í þriðja sæti er Zootropolis 2.

Nýju myndirnar Nuremberg og Shelter fóru beint í fjórða og fimmta sætið.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: