Ný stikla úr The Hunger Games: Mockingjay – Part 2 er komin út. Þar hvetur Katniss Everdeen fólk til að steypa forsetanum Snow af stóli og beina vopnum sínum að honum.
Einnig berjast Katniss og vinir hennar við ófrýnileg skrímsli sem herja að þeim.
Philip Seymour Hoffman bregður sömuleiðis fyrir í stiklunni en þetta var síðasta myndin hans áður en hann lést.
Um er að ræða fjórðu og síðustu Hunger Games-myndina og er hún væntanleg í bíó í nóvember. Reyndar hefur verið rætt um að halda áfram með Hunger Games-kvikmyndabálkinn í einhverju formi en ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum.