Sáu 72 kvikmyndir í bíó á einu ári – Topplisti

Guðjón Ingi Sigurðsson og Gabríel Daði Vignisson, Gabbi, fara oftar í bíó en meðalmaðurinn. Um hverja helgi fara þeir í svokallað „Sunnudagsbíó“. Undirbúningurinn hefst yfirleitt í miðri viku þegar sýningartímarnir á kvikmyndir.is eru grandskoðaðir. „Við Gabbi kynntust árið 2016 í gegnum sameiginlega vini. Árið 2017 byrjuðum við á þessum bíóferðum. Okkur vantaði eitthvað skemmtilegt að gera. Svo vatt þetta upp á sig og varð að föstum lið,“ segir Guðjón í samtali við Kvikmyndir.is.

Guðjón rekur líkamsræktarstöðina Train Station í Dugguvogi en Gabbi rekur pítsustaðinn Flatbökuna í Bæjarlind í Kópavogi.

Gabbi og Guðjón í Train Station í Dugguvogi.

„Um þetta leiti fórum við saman til Flórída í Bandaríkjunum og þar tókum við einmitt sunnudagsbíó. Við fórum í Unversal Studios skemmtigarðinn og sáum þar The Mummy með Tom Cruise. Uppfrá þessu höfum við verið í bíó nánast á hverjum einasta sunnudegi.“

Heldur tölfræði

Eins og gefur að skilja hafa þeir félagar barið ófáar myndirnar augum á þessum tíma. Guðjón segir að Gabbi hafi haldið tölfræði allan tímann. Þeir gefi meira að segja kvikmyndum einkunn og búi til topplista. Hann má sjá hér í lok greinarinnar. Efst á þeim lista er bandaríska Óskarsverðlaunakvikmyndin Three Billboards Outside Ebbing, Missouri.

Spurður um helstu venjur þegar í bíósalinn er komið segir Guðjón að hann sjálfur sé lítill popp og kók maður en leyfi sér stundum að fara á nammibarinn. „Maður sparar sér sælgætið í miðri viku og fær sér frekar í bíóinu.“

Í VIP á spari

Spurður um hvort þeir sæki í VIP salina segir Guðjón að það sé gert á spari. Til dæmis hafi þeir séð Avatar: The Way of Water í VIP. „Annars reynir maður að taka AXL salinn í Laugarásbíói eða sal 1 í Egilshöllinni. Við höfum fundið okkur góð sæti í þessum sölum sem við förum alltaf í.  Ég vil hinsvegar ekki upplýsa um hvaða sæti það eru – ég vil ekki eiga á hættu að missa bestu sætin!“

Þeir sem fara um hverja helgi í bíó eins og þeir Guðjón og Gabbi ná að sjá flestar myndir sem þangað rata. „Já, við sjáum næstum allt. Á þessu ári vantar okkur eina mynd. Við eigum eftir að sjá Babylon.“

Spurður að því hvort þeir séu alætur á myndir segir Guðjón að menn eins og þeir þurfi að vera það. „Maður þarf að vera opinn fyrir flest öllu. Við erum minnst í barnamyndunum auðvitað, en heilt yfir sjáum við allt, spennu, drama, gaman, osfrv. Við erum spenntastir fyrir því sem er nýjast og ferskast á hverjum tíma. Og ef það er eitthvað sérstakt í gangi eins og tilnefndar Óskarsverðlaunamyndir, þá reynir maður að taka aukasýningar, jafnvel í miðri viku, til að missa ekki af þeim.“

2018 besta árið

Guðjón segir að besta bíómyndaár þeirra félaga hafi verið 2018. „Það ár sáum við 72 kvikmyndir, eða 2,5 myndir á viku. Það er líka skemmtilegasta bíóárið til þessa. Þá voru einmitt tvær af þeim bestu sem við höfum séð saman frumsýndar,  Three Billboards Outside Ebbing, Missouri og The Phantom Thread. Mér finnst Three Billboards enn svo góð að ég hef horft á hana tvisvar til viðbótar.“

Frances McDormand í Three Billboards Outside Ebbing, Missouri.

Guðjón rifjar upp bíóferðina þegar þeir Gabbi sáu kvikmyndina góðu. „Við tókum hana í Háskólabíói. Það voru bara nokkrar sýningar í boði. Við ætluðum í raun ekki að sjá hana, en gripum hana á miðvikudegi eða fimmtudegi. Þetta var skyndiákvörðun sem ég sé ekki eftir.“

Þegar Covid-19 faraldurinn skall á með sínum víðtæku samkomutakmörkunum setti það strik í reikning bíóáhugamanna eins og þeirra Guðjóns og Gabba. „Við brugðumst við því með því að hreiðra um okkur í sófanum heima hjá Gabba. Hann keypti sér nýtt heimabíó og var með fínasta sjónvarp fyrir.  Það var hlaðið í fleiri bíókvöld en vanalega. Við tókum til dæmis allan Marvel katalóginn, 23 myndir.“

The Menu best í fyrra

Spurður um bestu myndir ársins 2022 nefnir Guðjón Elvis og Black Phone, sem komið hafi á óvart. „Svo var The Menu mjög góð og kom líka skemmtilega á óvart. Maður vissi ekkert hvað maður var að fara að sjá. Ég held ég fullyrði bara hér og nú að The Menu hafi verið besta mynd síðasta árs,“ segir Guðjón að lokum.

Sjáðu topp tíu lista Guðjóns og Gabba frá 2018 – 2023 hér fyrir neðan – frá 1 – 10:

Three Billboards Outside Ebbing, Missouri

Three Billboards Outside Ebbing, Missouri 2017

Gaman, Drama, Glæpa · 115 mín16 áraIMDb 8.1

Sjö mánuðum eftir að dóttir hennar var myrt þrýtur Mildred Hayes þolinmæðina og grípur til sinna ráða til að fá lögreglustjórann Bill Willoughby og menn hans í smábænum Ebbing í Missouri til að rannsaka málið og finna…

Gefa einkunn

Parasite

Parasite 2019

Gaman, Drama, Spennutryllir · 132 mín16 áraIMDb 8.5

Myndin fjallar um bláfátæka fjölskyldu í kóreskri borg en einn daginn breytist allt þegar sonurinn fær vinnu við að kenna unglingsstúlku ríkra hjóna.

Gefa einkunn

 The Menu

The Menu 2022

Gaman, Hrollvekja, Spennutryllir · 106 mín16 áraIMDb 7.1

Ungt par fer á fjarlæga eyju til að snæða þar á rándýrum veitingastað þar sem sem matreiðslumaðurinn undirbýr glæsilega máltíð, með nokkrum óvæntum og yfirgengilegum uppákomum.

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Green Book

Green Book 2018

Gaman, Drama, Æviágrip · 130 mín12 áraIMDb 8.2

Green Book segir frá tónleikaferðalagi djasspíanistans Dons Shirley og bílstjóra hans og lífvarðar Tonys Lip um Suðurríki Bandaríkjanna árið 1964, en ferðalaginu fylgdi mikil áhætta fyrir Don vegna fordóma margra…

Gefa einkunn

Joker

Joker 2019

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 122 mín16 áraIMDb 8.3

Upprunasaga Arthurs Fleck, trúðsins og misheppnaða uppistandarans sem býr við kröpp kjör hjá aldraðri móður sinni. Mótlætið í lífinu breytir honum smám saman í stórglæpamanninn síhlæjandi, Joker, sem eins og flestir…

Gefa einkunn

Phantom Thread

Phantom Thread 2017

Rómantík, Drama · 130 mín12 ára

Phantom Thread gerist í London í kringum 1960 þar sem við kynnumst klæðskeranum Reynolds Woodcock sem hefur sérhæft sig í viðskiptum við hástéttina í borginni og gengið vel. Reynolds er einstaklega agaður maður og…

Gefa einkunn

Jojo Rabbit

Jojo Rabbit 2019

Gaman, Drama, Stríð · 108 mín12 áraIMDb 7.9

Jojo er tíu ára drengur í ungliðahreyfingu Adolfs Hitlers, svonefndri Hitlersæsku, þar sem ungdóminum er m.a. kennt að meðhöndla vopn og að gyðingar séu rót alls ills. Þegar Jojo, sem á sér ímyndaðan vin að nafni Adolf…

Gefa einkunn

The Whale

The Whale 2022

Drama · 117 mín12 áraIMDb 7.6

Feiminn enskukennari sem jafnframt er offitusjúklingur reynir að endurnýja kynnin við unglingsdóttur sína.

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

1917

1917 2019

Drama, Stríð · 119 mín12 áraIMDb 8.2

1917 gerist í fyrri heimsstyrjöldinni, nánar tiltekið í NorðurFrakklandi vorið 1917, þegar tveimur breskum hermönnum, Schofield og Blake, er falið að koma þeim áríðandi skilaboðum til 1600-manna herdeildar sem komin er…

Gefa einkunn

Elvis

Elvis 2022

Drama, Tónlist, Æviágrip · 159 mín12 áraIMDb 7.3

Mynd um líf og feril hins goðsagnakennda rokktónlistarmanns Elvis Presley, séð í gegnum flókið samband hans við umboðsmanninn Colonel Tom Parker yfir 20 ára tímabil. Fjallað er um feril tónlistarmannsins allt frá því…

Gefa einkunn