Búið er að tilkynna um Óskarstilnefningar 2025. Verðlaunin verða veitt 3. mars í Dolby® leikhúsinu í Hollywood.

Hér fyrir neðan eru myndirnar tíu sem fengu tilnefningu sem besta mynd ársins 2024.

The Brutalist 2024
Hinn framsækni arkitekt László Tóth kemur til Bandaríkjanna eftir Seinni heimsstyrjöldina til að skapa sér nýja framtíð, og hefja nýtt líf með eiginkonu sinni, en þau skildust að í stríðinu vegna breytinga á landamærum…
Netflix
A Complete Unknown 2024
Myndin gerist í iðandi listasenu New York borgar á sjöunda áratug tuttugustu aldarinnar. Við fylgjumst með hinum nítján ára gamla þjóðlagasöngvara Bob Dylan frá Minnesota. Hann kynnist goðsögnum úr tónlistarheiminum sem…

Conclave 2024
Kardinálinn Lawrence fær það verkefni að stjórna einum elsta og leyndasta viðburði í heimi, vali á nýjum Páfa. Þegar valdamestu leiðtogar kaþólsku kirkjunnar hafa safnast saman alls staðar að úr heiminum og lokað sig af…

Dune: Part Two 2023
Í þessari framhaldsmynd af Dune er sagt frá ferðum Paul Atreides ásamt Chani og Fremen á plánetunni Arrakis og hefndum gegn þeim sem lögðu á ráðin um árásina og drápið á Atreides fjölskyldunni. Paul stendur frammi fyrir…

Emilia Pérez 2024
Æsispennandi glæpasaga þar sem við fylgjumst með eiturlyfjabarón sem á þá ósk heitasta að hefja nýtt líf sem kona.

I'm Still Here 2024
Einræðisstjórnin í Brasilíu nær hæstu hæðum á áttunda áratug tuttugustu aldarinnar. Paiva fjölskyldan, Rubens, Eunice og fimm börn þeirra, búa við ströndina í Rio. Dag einn er Rubens sóttur í yfirheyrslu og snýr ekki…

Nickel Boys 2024
Saga innilegrar vináttu tveggja svartra unglingsstráka sem eru vistaðir á upptökuheimilinu alræmda The Dozier School for Boys í Flórída í Bandaríkjunum, en skólinn var þekktur fyrir grimmilega misnotkun á nemendum.

The Substance 2024
Stórstjarna sem er farin að missa flugið, ákveður að nota svartamarkaðslyf, frumu-skiptaefni sem býr tímabundið til yngri og betri útgáfu af henni sjálfri.






