Tökur eru hafnar í London á enn einni seinni heimsstyrjaldar-mynd Brad Pitt, Allied, sem leikstýrt er af Robert Zemeckis. Aðalkvenhlutverkið er í höndum Marion Cotillard.
Frumsýningardagur hefur verið ákveðinn 23. nóvember á þessu ári.
Seinni heimsstyrjöldin hefur verið Pitt hugleikin upp á síðkastið. Skemmst er að minnast skriðdrekamyndarinnar Fury eftir David Ayer, og þar á undan var það Tarantino myndin Inglorious Basterds, hvorutveggja mjög góðar myndir, hvor á sinn hátt.
Í Allied leikur Pitt herforingjann Max Vatan. Í Norður-Afríku árið 1942 hittir hann andspyrnuhermann, sem Cotillard leikur, sem er í stórhættulegri sendiför á bakvið óvinalínuna. Þau hittast síðar í London, þegar sprengjuárás er gerð á borgina.
Þegar búið verður að taka upp í London munu tökulið og leikarar halda til Kanaríeyja.
Með önnur helstu hlutverk fara Jared Harris, Lizzy Caplan og Matthew Goode.