Hin unga og efnilega breska leikkona Melanie Liburd hefur verið ráðin í hlutverk Rauða kvenprestsins, eða Red Priestess, öðru nafni Melisandre, í hinum margverðlaunuðu sjónvarpsþáttum Game of Thrones.
Melisandre var lengst af nánasti ráðgjafi Stannis Baratheon í bókunum og þáttunum.
Liburd hefur áður leikið í sjónvarpsþáttunum The Grinder, Strike Back, Dracula og CSI: Crime Scene Investigation.
Ráðning Liburd í hlutverkið gæti skoðast sem ákveðin endurnýjun persónunnar eða endurholdgun, eins og það er orðað í Deadline, þar sem önnur leikkona, Carice Van Houten, hefur leikið prestinn hingað til.
Tökur á sjöttu þáttaröð Game of Thrones standa nú yfir á ýmsum tökustöðum.