Súðbyrðingur - saga báts (2010)
Fjórir menn ákveða að smíða eftir staðarskektunni ,,Björg”, bát sem hafði fúnað í grasi í Reykhólasveit.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Öllum leyfðSöguþráður
Fjórir menn ákveða að smíða eftir staðarskektunni ,,Björg”, bát sem hafði fúnað í grasi í Reykhólasveit. Smíð þessa báts er leiðarhnoð í frásögn af þróun súðbyrðingsins á Norðurlöndum. Haffærni þessara skipa ásamt kunnáttu í siglingum gerðu norrænum mönnum kleift að halda upp fljót Rússlands, sem og vestur um Miðjarðarhafið, hvort sem var til verslunar, rána, eða landkönnunar. En í daglegu amstri hafa ýmsar gerðir þróast af bátnum, bæði í Eystrasalti og við strendur Norður-Atlantshafs. Hefur hann mótast eftir aðstæðum á hverjum stað. Báturinn er trúarlegt tákn. Í þessum ,,báti” sem kvikmyndin er, rúmast margt, svo sem handbragð, heiðindómur, verslunarsaga, veiði, dauði og hátíðir. Í gegnum báta og skip tengjast hættir og saga þeirra þjóða sem búa á Norðurlöndum.
Svipaðar myndir
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!


















