Hungry Hearts
2014
Ást eða þráhyggja?
109 MÍNEnska
65% Critics 48
/100 Eftir að þeim Jude og Minu fæðist sonur byrjar Mina smám saman að sýna áráttuhegðun sem gæti ekki bara eyðilagt sambandið heldur stefnt syninum í lífshættu. Segja má að línan á milli móðurástar og þráhyggju sé rauði þráðurinn í þessu spennuþrungna sálfræðidrama leikstjórans Saverios Costanzo um móður sem tekur upp á því eftir fæðingu sonar... Lesa meira
Eftir að þeim Jude og Minu fæðist sonur byrjar Mina smám saman að sýna áráttuhegðun sem gæti ekki bara eyðilagt sambandið heldur stefnt syninum í lífshættu. Segja má að línan á milli móðurástar og þráhyggju sé rauði þráðurinn í þessu spennuþrungna sálfræðidrama leikstjórans Saverios Costanzo um móður sem tekur upp á því eftir fæðingu sonar síns að einangra hann frá umheiminum og neita m.a. að koma með hann í venjubundna heilbrigðisskoðun. Með því fær hún yfirvöld upp á móti sér og um leið lendir unnusti hennar og barnsfaðir á milli steins og sleggju í málinu. Það sem gerist næst á hins vegar eftir að leiða af sér enn flóknari og allt að því hrollkalda atburðarás ...... minna