Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ungur lögfræðingur, leikinn af Cuba Gooding jr., missir lögfræðiréttindin þegar hann svo að segja yfirgefur skjólstæðing sinn í miðjum réttarhöldum.
Eftir það ákveður hann að flytja til Flórída, hvar hann kynnist gömlum manni og áður en hann veit af er hann orðinn frægur rithöfundur, ákærður fyrir fimm morð. Þar sem hann unir því illa að vera á leið í rafmagnsstólinn ákveður hann að gera eitthvað í málunum. Um það fjallar þessi ágætisræma og er hún hin fínasta skemmtun.