Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ansi hreint bráðskemmtileg mynd um barnlaus hjón, löggukonu og bófakall, og tilraunir þeirra, heiðarlegar og óheiðarlegar, til barneigna og barnsþjófnaðar. Aukapersónur eru margar, strokufangabræður, mannaveiðari heldur ógeðfelldur og húsgagnasöluhjón og gefa myndinni aukið vægi, enda skemmtanagildi þeirra ótvírætt, eins og myndarinnar í heild.
Þetta er fyndin og frábær mynd. Nicolas Cage, Holly Hunter og John Goodman fara á kostum í sínum hlutverkum. Takið þessa á leigu strax, ef þið eruð ekki búin að sjá hana.