Moving

Moving (1988)

"On the New Jersey Turnpike, no one can hear you scream."

1 klst 29 mín1988

Hér kynnumst við Arlo Pear! Hann er fjölsyldumaður sem á ástríka eiginkonu, uppreisnargjarna dóttur, tvíburasyni, og hálf-dauðan hund.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

5 einkunnir á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

Hér kynnumst við Arlo Pear! Hann er fjölsyldumaður sem á ástríka eiginkonu, uppreisnargjarna dóttur, tvíburasyni, og hálf-dauðan hund. Hann er einnig í fínu starfi hjá borginni í New Jersey. Hann er verkfræðingur sem sérhæfir sig í almenningssamgöngum. En einn daginn er hann rekinn úr vinnunni þannig að nú þarf hann að finna sér annað starf. Hann finnur svipað starf og það gamla, nema það er í Boise í Idaho. Arlo líst vel á það, nú sleppur hann loksins burt frá klikkaða nágranna sínum sem á risastóra sláttuvél. Eina vandamálið er hvernig hann á að tilkynna fjölskyldunni fréttirnar. En ákvörðunin er tekin, og nú er að flytja! Nú þurfa þau að selja húsið með sprenghlægilegum afleiðingum. Þau finna sér flutningamenn, tvo fyrrum fanga hjá King Kong Bundy. Og svo er að finna sér rétta húsið í Idaho. Fljótlega finna þau draumahúsið, þannig að nú snúa þau aftur til New Jersey, og fara til Boise. Arlo ræður mann til að aka SAAB bifreið sinni til Idaho, en veit ekki að maðurinn er með átta persónuleika. Og ef það var ekki nóg þá er nýja húsið alls ekki eins og þau bjuggust við, og nágranni þeirra í New Jersey er tvíburi mannsins í næsta húsi við þau í Idaho, og hann á líka risastóra sláttuvél. Og þegar hlutirnir gátu ekki versnað meira, þá gera þeir það samt. Arlo missir nýju vinnuna og flutningamennirnir mæta aldrei á staðinn. Þannig að núna þarf Arlo að taka til sinna ráða!

Svipaðar myndir

Quick Change
Quick Change
1990·IMDb 6.8
Með Randy Quaid
Einkunn
Willow
Willow
1988·IMDb 7.2
Líka gaman
Disney+
Einkunn
Heartburn
Heartburn
1986·IMDb 6.1
Líka gaman
Einkunn

Myndbönd

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Alan Metter
Alan MetterLeikstjóri
Andy Breckman
Andy BreckmanHandritshöfundur

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Framleiðendur

Yomiuri Telecasting CorporationJP
Herald AceJP