Anna Hafþórsdóttir, aðalleikkona íslensku myndarinnar Webcam, sem frumsýnd var í gær, segir í samtali við mbl.is að kynlífssenur í myndinni hafi verið krefjandi: „Það eru senur þar sem ég er fáklædd og er að tala í vefmyndavélina en það sem var enn meira krefjandi eru kynlífssenur þar sem ég þarf að vera náin með öðru fólki og hreinlega nakin,“ segir Anna í Morgunblaðsgreininni.
Hún segir jafnframt að Sigurður Anton Friðþjófsson leikstjóri hafi hinsvegar komist mjög fagmannlega frá verkinu.
Myndin fjallar um unga stúlku, Rósalind sem eyðir mestum sínum tíma í að djamma, flakka milli stráka og hanga með bestu vinkonu sinni Agú. Allt þetta breytist þó eftir að hún kynnist strák með gægjuhneigð en þau kynni verða smám saman til þess að Rósalind finnur köllun sína í að fækka fötum fyrir framan vefmyndavél í beinni útsendingu á netinu. Við fylgjumst síðan með einu og hálfu ári í lífi Rósalindar sem „cam“-stúlku og sjáum hvernig þessi köllun hennar og áhugamál hefur áhrif á ástarsamböndin, fjölskyldulífið og ekki síst vináttu hennar við Agú.
Í samtalinu við mbl.is kemur fram að Anna hafi kynnt sér heim þeirra sem fækka fötum fyrir framan vefmyndavélar sérstaklega, og hafi lagt í rannsóknarvinnu: „Ég lagðist í smá rannsóknarvinnu, skoðaði þennan heim og komst að því að hann er mjög stór þrátt fyrir að ég hafi ekki vitað að hann væri til. Það eru allskonar stelpur að gera allskonar hluti og það eru miklir peningar í þessu fyrir þær sem eru virkastar og með aðdáendagrunn. Það eru menn sem koma aftur og aftur og stundum er eins og þeir verði ástfangnir af þeim,“ segir Anna við mbl.is, og bætir við „Þetta er mjög skrítinn heimur.“