Leikstjóri Justice League, Zack Snyder, birti í gær, á alþjóðlega Batman deginum, fyrstu myndina af J.K. Simmons í hlutverki lögregluforingjans Gordon, Commissioner Gordon, þar sem hann stendur við hlið Batman merkisins í rykfrakka.
Á dögunum birtum við mynd af nýjum búningi Batman, sem Ben Affleck leikur, en á nýju myndinni er Gordon staddur á húsþakinu fræga þar sem ljóskastari með Batman merkinu stendur og sendir Batman merkið út í næturhimin Gotham borgar.
Sjáðu myndina hér fyrir neðan – Justice League kemur í bíó 17. nóvember á næsta ári, 2017:
#JusticeLeague #BatmanDay pic.twitter.com/m1MbiF6HZD
— ZackSnyder (@ZackSnyder) September 17, 2016