Ofurhetjumyndin Fantastic Four er nú sýnd í íslenskum bíóhúsum. Enginn íslenskur leikari leikur í myndinni svo vitað sé, en við eigum þó aðkomu að myndinni í gegnum tónlistina þar sem tónlistamaðurinn Ólafur Arnalds samdi aðalþemastef (Theme song) myndarinnar, sem var frumsýnd á Íslandi sl. miðvikudag og verður frumsýnd í Bandaríkjunum í dag.
Stefið er virkilega flott og áhrifamikið og enn ein rós í hnappagatið hjá listamanninum.
Hlustaðu á stefið hér fyrir neðan: