Heimildarmynd um Winding Refn væntanleg

Ný heimildarmynd um danska leikstjórann Nicholas Winding Refn er væntanleg. Myndin er gerð af konunni hans, Liv Corfixen, og nefnist My life directed by Nicholas Winding Refn. Myndin var öll tekin upp þegar Refn var að leikstýra myndinni Only God Forgives, með Ryan Gosling í aðalhlutverki.

refn2__large

Only God Forgives var tekin upp í Bangkok og bjó fjölskylda hans með honum á meðan tökum stóð. Ef marka má stikluna úr myndinni þá má búast við mjög áhugaverðri innsýn í líf leikstjórans utan tökustaðar. Í stiklunni er Refn bæði að glíma við sögulega uppbyggingu myndarinnar og að reyna að halda góðu sambandi við konuna sína.

Myndin verður frumsýnd í Danmörku þann 17. júlí næstkomandi og hér að neðan má sjá stiklu úr myndinni.