Fyrsta stiklan úr The Revenant með Leonardo DiCaprio í aðalhlutverki er komin út.
Myndin er sú nýjasta frá mexíkóska leikstjóranum Alejandro Gonzalez Inarritu sem vann Óskarinn fyrr á árinu fyrir Birdman.
Við myndatökurnar notaði hann eingöngu náttúrulega lýsingu.
Hinn fúlskeggjaði DiCaprio hefur í mörg horn að líta í sýnishorninu, auk þess sem Tom Hardy kemur við sögu.
The Revenant er byggð á sönnum atburðum og fjallar um landkönnuðinn Hugh Glass sem lendir í bjarnarárás og þarf að lifa af einn og yfirgefinn úti í náttúrunni.
Myndin væntanleg í bíó hérlendis í byrjun næsta árs.
Sjáðu stikluna hér: