Aðalmennirnir á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans eru eins og í síðustu viku, þeir Davis Okoye, sem Dwayne Johnson leikur, og gáfaða górillan hans George, í kvikmyndinni Rampage. Það sama má segja um myndirnar í öðru og þriðja sæti listans, A Quiet Place og Víti í Vestmannaeyjum, þær eru báðar í sömu sætum og í síðustu viku.
Fimm nýjar myndir eru þó á listanum þessa vikuna. Í sjöunda sæti situr teiknimyndin Önd Önd Gæs, í því níunda er gamanmyndin Super Troopers 2, þá kemur Every Day í sæti númer 10 og Adam í því nítjánda. Að síðustu er A Gentle Creature í 21. sæti bíóaðsóknarlistans.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: