Önd önd gæs
2018
(Duck Duck Goose)
Frumsýnd: 20. apríl 2018
Family can be a Wild Ride
91 MÍNÍslenska
Gæsapiparsveinn, þarf að tengjast tveimur týndum ungum nánum böndum á leið sinni suður á bóginn. Önd, önd, gæs er glæný teiknimynd um unglingsgæsina Peng sem heldur að hann sé snjallasta gæsin í gæsahópnum og þurfi ekkert að æfa sig fyrir haustferðina suður á bóginn. Þetta viðhorf á eftir að koma honum í koll ... en þó með þeim óvæntu afleiðingum... Lesa meira
Gæsapiparsveinn, þarf að tengjast tveimur týndum ungum nánum böndum á leið sinni suður á bóginn. Önd, önd, gæs er glæný teiknimynd um unglingsgæsina Peng sem heldur að hann sé snjallasta gæsin í gæsahópnum og þurfi ekkert að æfa sig fyrir haustferðina suður á bóginn. Þetta viðhorf á eftir að koma honum í koll ... en þó með þeim óvæntu afleiðingum að hann eignast tvo fósturunga! Það skemmtilegasta sem Peng gerir er að fljúga um loftin blá á miklum hraða og taka alls konar áhættu. Hann á hins vegar erfitt með að fylgja reglum og halda aga og er af þeim sökum t.d. óhæfur til að fara fremstur í oddafluginu sem gæsir nota til að komast lengra og fljúga léttara þegar þær eru að ferðast á milli staða, ekki síst heimsálfa eins og þær gera flestar tvisvar á ári. Dag einn gerir Peng mistök í áhættufluginu með tvöföldum afleiðingum. Annars vegar meiðir hann sig í öðrum vængnum sem kemur tímabundið í veg fyrir að hann geti flogið og hins vegar verður honum á að tvístra andahóp þannig að tveir litlir andarungar verða viðskila við fjölskyldu sína. Þótt Peng hafi síst af öllu ætlað sér að gerast fósturfaðir getur hann ekki skilið ungana eftir og þar með hefst nýr kafli í lífi hans ... og andarunganna tveggja.... minna