23 ára karlmaður hefur verið handtekinn og kærður fyrir að hrella bróður leikkonunnar Jennifer Lawrence, Blaine.
Samkvæmt NY Daily News byrjaði maðurinn að hrella Blaine í apríl með stanslausum símtölum, sms-um og tölvupóstsendingum. Hann segist vera sjálfur Jesús Kristur enduborinn og telur sig eiga að vera vernda leikkonuna frá öllu illu og verða eiginmaður hennar.
Maðurinn var handtekinn eftir að hann fór á lögreglustöð heimabæjar leikkonunnar í Kentucky og bað um heimilisfang móður hennar.
Lawrence hefur ekki tjáð sig um málið. Tvær næstu myndir hennar eru The Hunger Games: Catching Fire og X-Men: Days of Future Past.