Deadpool kitla sló heimsmet

Everyone deserves a happy ending… kitlan sem allir hafa beðið eftir fyrir ofurhetjukvikmyndina Deadpool & Wolverine, sló heimsmet þegar hún var frumsýnd á sunnudaginn síðasta með 365 milljón áhorf á 24 klukkutímum.

Leikstjóri myndarinner er Shawn Levy en helstu leikarar eru Ryan Reynolds, Hugh Jackman, Emma Corrin, Morena Baccarin, Rob Delaney, Leslie Uggams, Karan Soni og Matthew Macfadyen.

Deadpool myndir númer 1 og 2 slógu í gegn um allan heim á sínum tíma og námu tekjur myndanna í Bandaríkjadölum 783 milljónum og 786 milljónum.

Deadpool and Wolverine

Deadpool and Wolverine 2024

Spenna, Gaman, Vísindaskáldskapur · 127 mín16 áraIMDb 7.5

Wade Wilson er nennulaus, búinn að skilja við sitt annað sjálf, ofurhetjuna orðljótu Deadpool, og lifir borgaralegu venjulegu lífi. En þegar ógn steðjar að heimahögunum þarf Wade að taka ofurhetjugallann ofan úr hillu…

Horfa:Disney+
Gefa einkunn

Von er á kvikmyndinni í bíó í Bandaríkjunum 26. júlí næstkomandi en á Íslandi verður myndin frumsýnd enn fyrr, eða 24. júlí.

Smelltu á myndirnar til að sjá þær stórar.

Sjáðu stikluna hér fyrir neðan: