Það er tíðindalaust á toppi íslenska bíóaðsóknarlistans þessa helgina. Baltasar Kormákur er þar sem kóngur í ríki sínu með stórmynd sína Everest, þriðju vikuna í röð! Meira að segja toppmyndin í Bandaríkjunum þessa helgina, The Martian, nær ekki að velta Everest úr sessi, og situr í öðru sæti, ný á lista.
Í þriðja sæti listans er svo teiknimyndin Hotel Transylvania 2, sem var önnur vinsælasta myndin á Íslandi í síðustu viku.
Ein ný mynd önnur er á listanum, mafíumyndin sannsögulega Black Mass með Johnny Depp í aðalhlutverkinu.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: