Robert Downey Jr. hringdi í Wesley Snipes til að leita sér ráða áður en hann tók að sér aðalhlutverkið í Iron Man.
Áður höfðu þeir leikið saman í myndunum One Night Stand og US Marshals. „Hann er ótrúlega hæfileikaríkur leikari sem ég ber mikla virðingu fyrir. Ég hafði mjög gaman af því að leika á móti honum. Svo breyttist hann í hasarmyndahetju,“ sagði Snipes í viðtali við The Telegraph í tilefni af frumsýningu The Expendables 3.
„Ég man að hann reyndi að ná í mig en ég hringdi ekki í hann til baka. Robert var að spekulera í Iron Man og vildi komast að því hvernig það er að leika myndasagnahetju vegna þess að ég hafði þegar leikið í Blade. Ekki það að … ókei, ég skal eigna mér heiðurinn af góðu gengi hans sem Iron Man,“ sagði Snipes