Þýsk veisla framundan

Bíó Paradís býður kvikmyndaunnendum upp á sannkallaða kvikmyndaveislu þegar Þýskir kvikmyndadagar fara fram í fimmtánda sinn dagana 21. febrúar – 2. mars 2025. Viðburðurinn er í samstarfi við Goethe-Institut Dänemark, German Films og Þýska sendiráðið á Íslandi.

Eins og fram kemur í tilkynningu verða sýndar sex framúrskarandi þýskar kvikmyndir á hátíðinni sem bjóða áhorfendum upp á magnað ferðalag í gegnum spennandi sögur, sögulega atburði og ógleymanlegan tilfinningarússíbana. Að auki verður boðið upp á klassíska kvikmynd á sérstakri föstudagspartísýningu með þýsku teknói.

Dagskráin í stuttu máli:

  • Sterben (Dying) – Opnunarmynd hátíðarinnar, dramatísk mynd um brotna fjölskyldu sem hlaut silfurbjörninn fyrir besta handrit á Berlinale og var valin besta mynd ársins á Þýsku kvikmyndaverðlaununum 2024.
  • Dying

    Dying 2024

    Drama · 183 mín12 áraIMDb 7.4

    Dauðinn á sér margar birtingarmyndir í Lunies fjölskyldunni, þar sem við fylgjumst með syninum Tom (stjórnanda ungmennasinfóníu), systurinni Ellen (sem hefur ekki átt sjö dagana sæla) og móðurinni Lissy (sem er karakter…

    Gefa einkunn

  • The Seed of the Sacred Fig – Pólitísk spenna og fjölskylduleyndarmál á tímum ólgu í Teheran. Myndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna 2025 sem besta erlenda mynd ársins.

The Seed of the Sacred Fig

The Seed of the Sacred Fig 2024

Drama, Spennutryllir, Glæpa · 167 mín16 áraIMDb 7.5

Við fylgjumst með fjölskyldu rannsóknardómara þar sem byssan hans hverfur óvænt á sama tíma og heljarinnar mótmæli brjótast út í Teheran höfuðborg Írans. Innan áður samheldinnar fjölskyldu hans myndast eitrað…

Gefa einkunn
  • Cuckoo – Hræðslutryllir með Hunter Schafer (Euphoria) í aðalhlutverki.

Cuckoo

Cuckoo 2024

Hrollvekja, Spennutryllir, Ráðgáta · 102 mínIMDb 5.6

Eftir að hafa þurft að flytja gegn vilja sínum til þýsku Alpanna með föður sínum og nýju fjölskyldu hans, þá kemst Gretchen að því að nýi bærinn býr yfir ískyggilegum leyndarmálum. Undarleg hljóð plaga hana og skelfileg…

Horfa:Netflix
Gefa einkunn
  • From Hilde, with Love – Ástarsaga í skugga seinni heimsstyrjaldarinnar um andspyrnuhóp í Berlín.

From Hilde with Love

From Hilde with Love 2024

Drama, Söguleg, Æviágrip · 125 mín16 áraIMDb 7.0

Við erum stödd í Berlín árið 1942. Við fylgjumst með Hilde sem er virkur meðlimur í and-nasistahópi, sem verður ástfangin af Hans sem er einnig virkur í hópnum. Þau eyða sumrinu saman eða þar til lífið tekur…

Gefa einkunn
  • Riefenstahl – Heimildamynd um flókna ævi Leni Riefenstahl og siðferðilegar spurningar um ábyrgð listamannsins.

Riefenstahl

Riefenstahl 2024

Heimildarmynd · 115 mín12 áraIMDb 7.2

Áhrifamikil heimildamynd sem fjallar um ævi Leni Riefenstahl og flókin tengsl hennar við nasistastjórnina. Með því að bera sjálfsmynd hennar saman við sögulegar staðreyndir, dregur myndin fram siðferðilegar spurningar…

Gefa einkunn
  • She Chef – Heimildamynd um Agnesi Karrasch, unga og óhefðbundna matreiðslukonu í heimi háklassa matargerðarlistar.

She Chef

She Chef 2022

Heimildarmynd · 103 mínÖllum leyfðIMDb 7.5

Áhrifamikil heimildarmynd þar sem við fylgjumst með hinni ungu Agnesi Karrasch í heimi háklassa matargerðarlistar. Agnes er örvhent og stendur utan við hefðbundnar staðalmyndir í matargerð, sem oftast eru…

Gefa einkunn
  • Run Lola Run – Föstudagspartísýning þar sem adrenalínið tekur völdin! Sýningin fer fram 28. febrúar kl. 21:00 með DJ Sley sem leikur þýskt teknó eftir myndina.

Run Lola Run

Run Lola Run 1998

Spenna, Spennutryllir, Glæpa · 81 mín12 áraIMDb 7.6

Kærasti Lolu vinnur sem íhlaupamaður fyrir mafíuna, og skilur eftir fulla tösku af peningum sem vinnuveitandi hans á, í neðanjarðarlest. Hann hringir í Lolu í ofboði og segir að ef hann geti ekki náð í peningana á næstu…

Gefa einkunn

Miðasala er hafin á heimasíðu Bíó Paradís.

Sjáðu dagskrána og sýningartíma á bioparadis.is og hjá okkur hér og hér.

Ekki missa af veislunni – Þýskir kvikmyndadagar eru einstakt tækifæri til að njóta kvikmyndalistar á heimsmælikvarða.