Um síðustu helgi voru hvorki fleiri né færri en tuttugu og sex kvikmyndir í bíó á Íslandi sem er harla gott. Vinsælust þeirra allra var spennumyndin Napóleonsskjölin eftir Óskar Þór Axelsson. Myndin er gerð eftir samnefndri bók glæpahöfundarins Arnaldar Indriðasonar.

Um 5.200 manns komu á myndina nú um frumsýningarhelgina og aðgangseyrir nam samtals 11,5 milljónum króna.

Napóleonsskjölin 2023
Þegar bróðir lögfræðingsins Kristínar rekst á þýskt flugvélarflak úr seinni heimstyrjöld á toppi Vatnajökuls, dragast þau bæði inn í atburðarás upp á líf og dauða, hundelt af hópi manna sem skirrist einskis við að halda…
Villibráð með 82 mkr.
Næst vinsælasta kvikmynd síðustu helgar var vinsælasta kvikmynd síðustu fjögurra vikna þar á undan, Villibráð, eftir Elsu Maríu Jakobsdóttur.
Heildartekjur Villibráðar standa nú í 82 milljónum króna!
Í þriðja sæti er mynd sem flestir Íslendingar ættu að tengja við, ný teiknuð útgáfa af leikritinu Kardemommubænum.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan:








