Tommy Lee Jones, Jessica Alba og Michelle Yeoh hafa verið ráðin til að leika í framhaldi af Jason Statham myndinni The Mechanic ( Vélvirkinn ) frá árinu 2011; Mechanic: Resurrection.
Myndin verður frumsýnd 22. janúar 2016. Leikstjóri er Dennis Gansel.
Mechanic: Resurrection mun segja frá leigumorðingjanum Arthur Bishop, sem Statham leikur, þar sem hann er rembast við að klára lista yfir hættulegustu menn í heimi, en hann á að myrða þá hvern á eftir öðrum .
Tökur myndarinnar hófust þann 4. nóvember sl. í Bangkok í Taílandi.
Nýjasta mynd Jones er The Homesman, vestri sem Jones leikstýrði og skrifaði handritið að. Alba sást nýverið í Sin City: A Dame to Kill For, og næstu myndir hennar eru spennugamanmyndin Barely Legal, þar sem hún leikur á móti Samuel L. Jackson, og gamanmyndin The Wright Girls.
Yeoh sést bráðum í framhaldi myndarinnar Crouching Tiger, Hidden Dragon.