Sögusagnir um að gamanleikkonan vinsæla Kristen Wiig hefði verið ráðin í hlutverk aðal óþokkans í Wonder Woman framhaldsmyndinni, hafa nú verið staðfestar.
Leikstjórinn, Patty Jenkins, fór á Twitter og skrifaði þar færsluna: „Já! það er satt!“. „Ótrúlega ánægð að fá hina hæfileikaríku Kristen Wiig í Wonder Woman fjölskylduna. Get ekki beðið eftir að vinna með einni af minni uppáhalds. Og MJÖG spennt yfir því sem koma skal.“
So excited to confirm the most thrilling news. Yes! It’s true! So incredibly lucky to welcome the sensationally talented Kristen Wiig to our Wonder Woman family. Can’t wait to finally work with one of my favorites. And SO excited by what we have planned. #Cheetah!!! @GalGadot pic.twitter.com/Gn0jICiIAH
— Patty Jenkins (@PattyJenks) March 9, 2018
Í Wonder Woman 2 mun Kristen fara með hlutverk Cheetah, eins helsta erkióvinar Wonder Woman. Cheetah var upphafleg sköpuð af höfundi Wonder Woman, William Moulton Marston árið 1943. Hún var upphaflega hefðardama sem hét Priscilla Rich, en var með klofinn persónuleika. Aðrar útfærslur á Cheetah eru Deborah Domaine, frænka Priscilla Rich, og Barbara Ann Minerva, fornleifafræðingur sem varð Cheetah eftir að hafa tekið þátt í frumstæðri athöfn.
Það verður spennandi að sjá Wiig í óþokkahlutverkinu!