Orange is the New Black leikkonan Lauren Lapkus er nýjasta viðbótin við leikhóp gamanmyndarinar Holmes & Watson, með þeim Will Ferrell og John C. Reilly í aðalhlutverkum. Etan Cohen (Get Hard) leikstýrir eftir handriti sem hann vann upp úr sögu Arthur Conan Doyle um rannsóknarlögregluna Sherlock Holmes.
Í myndinni koma þeir saman á ný þeir Ferrell og Reilly, en þeir léku saman í myndunum Step Brothers og Talladega Nights: The Ballad Of Ricky Bobby. Tökur hefjast í lok þessa mánaðar.
Lapkus mun leika hlutverk Millie, sem Sherlock hrífst af, og verður nánast heltekinn af.
Lapkus er þekktust fyrir hlutverk sitt sem Susan Fischer í sjónvarpsþáttunum Orange is the New Black. Hún sást síðast á hvíta tjaldinu í Jurassic World.