Fyrsta kynningarplakatið fyrir Pixar-teiknimyndina The Good Dinosaur er komið á netið. Þar sjást aðalpersónurnar tvær, risaeðlan Arlo og strákurinn Spot, misánægðar á svipinn.
Í myndinni er spurt spurningarinnar hvað hefði gerst ef risaeðlurnar hefðu ekki dáið út fyrir 65 milljónum ára.
The Good Dinosaur er væntanleg í bíó árið 2015.