Tökur á þriðju ofurhetjumyndinni um Thor, Thor Ragnarok, standa nú sem hæst í Queensland í Ástralíu, en það er að sjálfsögðu heimamaðurinn, ástralski leikarinn Chris Hemsworth, sem fer með hlutverk hins hamars-sveiflandi Þórs. Skemmst er að minnast þess þegar fyrsta myndin var að hluta til tekin upp hér á Íslandi.
Í myndinni koma fleiri ofurhetjur við sögu, þar á meðal hinn hoppandi græni risi Hulk, í túlkun Mark Ruffalo, en Ruffalo birti fyrr í dag mynd á Twitter þar sem hann er kominn með Hulk-hendurnar og sveiflar þeim í átt að myndavélinni.
Sjón er sögu ríkari:
Hello from the set of #Thor3! As you can see, I’ve got my hands full. It ain’t easy being green….@thorofficialhttps://t.co/PnYTnX8n96
— Mark Ruffalo (@MarkRuffalo) July 12, 2016
Leikstjóri Thor: Ragnarok er Taika Waititi, og handritið skrifa þau Christopher Yost og Craig Kyle. Auk Hemsworth og Ruffalo, þá fer Tom Hiddleston enn á ný með stórt hlutverk í myndinni, hlutverk Loka.