Það þekkja eflaust allir Simpson fjölskylduna sem hefur verið á skjánum í tæp 25 ár. Yngsti meðlimur fjölskyldunnar hefur loksins fengið aðalhlutverk í nýrri stuttmynd sem ber heitið „The Longest Daycare“ og fjallar myndin um Maggie sem eyðir deginum á dagheimili fyrir börn og á í stríði við erkióvin sinn, barnið Gerald.
Stuttmyndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna og telja margir að hún muni hreppa verðlaunin.
James L. Brooks framleiðir myndina og er tónlistin í höndum Hans Zimmer.
Hér fyrir neðan má sjá stuttmyndina: