Teiknimyndin Smáfótur gerði sér lítið fyrir og hratt íslensku kvikmyndinni Lof mér að falla af toppi íslenska bíóaðsóknarlistans nú um helgina, en þar hafði Lof mér að falla setið í þrjár helgar í röð. Mjótt var þó á munum því tekjur Smáfótar námu rúmum 5,5 milljónum króna, en tekjur Lof mér að falla námu tæpum fimm milljónum.
Í þriðja sæti listans var svo ný mynd, toppmyndin í Bandaríkjunum, Night School með grínistanum Kevin Hart í aðalhlutverki. Tvær aðrar nýjar myndir eru á listanum að þessu sinni. Beint í sjötta sætið kemur A Simple Favor, með Anna Kendrick og Blake Lively í helstu hlutverkum og í 16. sætinu situr Loving Pablo sem byggð er á sannsögulegum atburðum.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: