Í janúar á síðasta ári sagði Sylvester Stallone frá því að framhaldsmynd væri á leiðinni af boxmyndinni Creed, sem var hliðarsaga af hinum goðsagnakenndu Rocky myndum Stallone.
Verkefnið hefur þó verið í hálfgerðu frosti um langa hríð, þar sem leikstjórinn Ryan Coogler og aðalstjarnan Michael B. Jordan, eru á fullu að gera Marvel ofurhetjumyndina Black Panther.
Stallone, eða Sly eins og hann er oft kallaður, hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum upp á síðkastið og látið í veðri vaka að framhaldsmyndin sé á leiðinni og hefur gefið undir fótinn með að myndin muni tengjast Rocky IV.
Stallone hefur áður gefið til kynna að Creed 2 myndi spegla Rocky IV og sagt að: „Ein leið væri að þetta yrði línuleg frásögn af Adonis sem myndi spegla söguna í Rocky IV. Hann myndi mæta öðrum andstæðingi, sem yrði enn hrikalegri og stærri Rússi.“
Um svipað leiti sagði Michael B. Jordan að hann vildi sjá alvöru þorpara í myndinni, einhvern sem Adonis líkaði verulega illa við. Það má segja að Ivan Drago, andstæðingur Rocky í Rocky IV, eða sonur hans, gæti passað þessari lýsingu vel, enda var Drago ábyrgur fyrir dauða föður Adonis, Apollo Creed, í hnefaleikarhringnum í þessari sígildu hnefaleikamynd frá árinu 1985.
Kíktu á nokkrar Instagram færslur Sly hér að neðan: