Fyrsta sýnishorn úr kvikmyndinni Lovelace, sem fjallar um Deep Throat klámstjörnuna Lindu Lovelace hefur litið dagsins ljós.
Amanda Seyfried leikur Lindu og vill hún meina að hún vissi frá upphafi að þetta ætti ekki að vera kvikmynd um klámstjörnu, heldur fyrst og fremst sé þetta saga um konu og samband hennar við manninn sinn. Í enda dagsins hafi þetta ekki snúist um nekt eða klám, heldur eitthvað miklu meira en það.
Það má segja að hlutverkið sé ögn djarfara en Amanda hefur tekið að sér áður og þekkja margir hana úr söng- og gamanmyndinni Mamma Mia, þar sem hún leikur hina ljúfu brúði Sophie.
Amanda vill meina að það sé mikið um tepruskap í Bandaríkjunum varðandi nekt og kynlíf á hvíta tjaldinu en á sama tíma kippir sér enginn upp við byssur. Amanda segir að kynlíf í kvikmyndum fyrir henni sé ekki mikið mál því allir stundi það hvort sem er.
Linda Lovelace varð fræg á áttunda áratugnum þegar hún lék í víðfrægu klámmyndini Deep Throat, seinna kom í ljós að hún var aðeins þræll klámiðnaðarins og var ævi hennar vægast sagt átakanleg. Linda eyddi eldri árum sínum sem mótmælandi gegn klámiðnaðinum. Hún lést árið 2002 í bílslysi.