Fyrsta sýnishornið úr nýjustu mynd Luc Besson, Lucy, var opinberað fyrr í dag.
Í myndinni leikur Scarlett Johansson burðardýr sem umbreytist í mikla bardagahetju sem finnur ekki til sársauka og tilfinninga þegar eiturlyfið sem hún reyndi að smygla innvortis kemst óvart inn í blóðrás hennar. Lyfið eykur einnig á virkni heilans og í kjölfarið fær hún einnig ofurmannlega andlega hæfileika.
Morgan Freeman og Analeigh Tipton leika einnig stór hlutverk í Lucy, sem verður frumsýnd í Norður-Ameríku í ágúst.
Frakkinn Luc Besson leikstýrði síðast The Family en á að baki gullmola á borð við The Fifth Element, Leon og La Femme Nikita.
Hér að neðan má sjá fyrstu stikluna úr myndinni.