Ein síðasta myndin sem James Gandolfini lék í áður en hann lést, Enough Said, fer í almennar sýningar 20. september í Norður-Ameríku.
Þetta tilkynnti dreifingaraðilinn Fox Searchlight, skömmu eftir að hann greindi frá því að myndin yrði sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto sem verður haldin um miðjan september. Þetta kemur fram á vefsíðu Variety.
Enough Said er rómantísk gamanmynd. Þar leikur Julia Louis-Dreyfus konu sem byrjar í ástarsambandi með manni sem Gandolfini leikur. Hann er fyrrverandi eiginmaður nýrrar vinkonu Dreyfus-persónunnar. Vinkonuna leikur Catherine Keener.
Gandolfini, þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum The Sopranos, lést 19. júní.