Víti í Vestmannaeyjum - Sagan öll

Víti í Vestmannaeyjum - Sagan öll (2018)

The Falcons

25 mín2018

Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum
Hvar má horfa

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Hvar má horfa

Streymi
RÚV

Söguþráður

Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar vinir.

Þáttaröðinni lokið1 þáttaröð

Þættir

1 þáttaröð · 6 þættir
Horfa áRÚV
  1. 1

    Þáttur 1

    Jón er kominn til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Það er aðeins tvennt sem truflar hann: öll eldfjöllin og brjálaði boltaþjófurinn. Rósa berst fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki, en þar vantar einmitt einn leikmann.

    Horfa
  2. 2

    Þáttur 2

    Rósa heldur áfram að þykjast vera strákur og spila með Fylki. Hún fær góð ráð frá markahæstu landsliðskonu Íslands - og Evrópu. Jón áttar sig á því að það er ekki í lagi með pabba hans Ívars, á meðan Skúli virðist móðga alla sem hann hittir.

    Horfa
  3. 3

    Þáttur 3

    Jón og Rósa fara heim til Ívars til að ná boltanum hans Jóns til baka. Það sem þau verða vitni að þar er verra en þau hafði nokkurn tímann grunað. Þau sjá að Ívar býr í víti. Nú þarf löggan að hjálpa.

    Horfa
  4. 4

    Þáttur 4

    Fálkarnir eru komnir í 16 liða úrslit svo nú eru allir leikir úrslitaleikir. Á sama tíma þarf Jón að hjálpa Ívari í baráttu upp á líf og dauða.

    Horfa
  5. 5

    Þáttur 5

    Á yfirborðinu er allt slétt og fellt en undir niðri kraumar eldurinn. Jón, Rósa og Ívar þurfa að berjast fyrir lífi sínu á kvöldskemmtun, í næturslagsmálum og á morgunfundi.

    Horfa
  6. 6

    Þáttur 6

    Lokadagurinn er runninn upp. Hverjir komast í úrslitaleikinn? Hvar er Ívar? Getur skipstjórinn hjálpað? Og að endingu - fer að gjósa?

    Horfa

Svipaðar myndir

Leiðangurinn
Leiðangurinn
2019·Þáttaröð
Líka barna, fjölskylda
RÚV
Einkunn
Birta
Birta
2021·IMDb 5.9
Sami leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson
Síminn
Einkunn
Venjulegt fólk
Venjulegt fólk
2018·Þáttaröð·IMDb 7.6
Gaman, Drama
Einkunn

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!