Vikan með Gísla Marteini (2015)
Skemmtiþátturinn Vikan með Gísla Marteini hóf göngu sína á dagskrá RÚV fyrir áratug.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Öllum leyfðSöguþráður
Skemmtiþátturinn Vikan með Gísla Marteini hóf göngu sína á dagskrá RÚV fyrir áratug. Í þáttunum, sem eru flestum landsmönnum kunnugir, fær hinn geðþekki Gísli Marteinn Baldursson til sín gesti – yfirleitt þrjá til fjóra í hverjum þætti – sem sitja saman í sófa og spjalla við þáttarstjórnandann. Fastir liðir í þættinum eru yfirferð Gísla á fréttum vikunnar, einhvers konar atriði, yfirleitt tónlist, auk innslaga frá hinni satírísku Berglindi Festival.
Þættir
11 þáttaraðir · 298 þættir- 1
19. september 2025
Vikan er snúin aftur! Gestir þáttarins eru Sólveig Eiríksdóttir, Vigdís Hafliðadóttir og Þorsteinn Bachmann. Ellý Ármanns og leynigestur kíkja á Gísla í Fréttum Vikunnar. Moulin Rouge! tekur yfir myndverið. ELVAR lokar þættinum með laginu Miklu betri einn.
- 2
26. september 2025
Gestir þáttarins eru Karen Björg Þorsteinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Urður Örlygsdóttir. Berglind Festival kynnir sér einn vinsælasta ferðamannastað Íslands, Gjaldskyldu. Páll Óskar og Benni Hemm Hemm loka þættinum með laginu Eitt af blómunum.
- 3
3. október 2025
Gestir þáttarins eru Íris Róbertsdóttir, Jón Gnarr og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Þátturinn hefst á barokk tónlistaratriði sem verður á hátíðinni State of the Art. Berglind Festival ræðir við okkar lífsreyndasta fólk. Digital Ísland lokar þættinum með laginu Reyna.
- 4
10. október 2025
Gestir þáttarins eru Baltasar Kormákur, Guðmundur Benediktsson og Steiney Skúladóttir. Hljómsveitin Úlfur Úlfur sér um tónlist kvöldsins og flytur gamlan smell í upphafi þáttar og nýjasta lag sitt, Sumarið, í lokin. Berglind Festival kynnir inn nýja þriggja þátta seríu um sögu íslensku konunnar.
- 5
17. október 2025
Gestir þáttarins eru Ilmur Kristjánsdóttir, Jakob Birgisson og Sigurbjörn Árni Arngrímsson. Berglind Festival sýnir annan þáttinn af þremur um sögu íslensku konunnar. Alaska1867 frumflytur lagið Sorry í lok þáttar.
- 6
24. október 2025
Gestir þáttarins eru Ásta S. Fjeldsted, Ásthildur Úa Sigurðardóttir, Sóley Tómasdóttir og forseti Íslands, Halla Tómasdóttir. Mammaðín sér um tónlist kvöldsins, þær taka útgáfu af laginu Áfram stelpur í upphafi þáttar og enda svo þáttinn á lagi sínu Frekjukast ásamt kvennakór. Síðasti þáttur Berglindar Festival um sögu íslensku konunnar er sýndur.
- 7
31. október 2025
Gestir í þessum sérstaka hrekkjavökuþætti eru Gauti Þeyr Másson (Emmsjé Gauti), Saga Garðarsdóttir og Daði Már Kristófersson gestir. Gestir frá Diskóeyju opna þáttinn á glænýju lagi, Fullt tungl af blóði. Berglind Festival kynnir sér ógnina sem sækir að íslenskunni. Emmsjé Gauti og Floni enda þáttinn á laginu RGP.
- 8
7. nóvember 2025
Gestir þáttarins eru Hera Hilmarsdóttir, Jóhann Kristófer Stefánsson og Ólafur Jóhann Ólafsson. Hljómsveitin Múm flytur upphafslag þáttarins, Skokk, með sínu nefi og enda svo þáttinn á lagi sínu Mild at heart. Jóhann Kristófer (Joey Christ) flytur lagið Sæta í miðjum þættinum. Berglind Festival fjallar um öll furðulegustu örnefni Íslands.
- 9
14. nóvember 2025
Gestir þáttarins eru Helga Braga Jónsdóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Katrín Júlíusdóttir. Bríet flytur lagið Eina nótt í upphafi þáttar til heiðurs Helga Péturssyni. Berglind Festival eignast gervigreindarkærasta. Bríet flytur lagið Walk out the door í lok þáttar.
- 10
21. nóvember 2025
Gestir þáttarins eru Berglind Alda Ástþórsdóttir, Einar Kárason og Una Torfadóttir. Berglind Festival breytir barnaefni til hins betra. KUSK og Óviti slá botninn í þáttinn með laginu Hjá mér.
- 11
28. nóvember 2025
Gestir þessa fyrsta jólaþáttar eru Andri Snær Magnason, Björn Bragi Arnarsson og Eva Laufey Kjaran. Þórhallur Sigurðsson sest einnig í sófann í lok þáttar. GDRN og Magnús Jóhann flytja lagið Það sem jólin snúast um í upphafi þáttar. Dengsi og Gísli Marteinn flytja lagið Það er alveg dagsatt ásamt hljómsveit og kór. Berglind Festival fer á stúfana í verslunarmiðstöð á Svörtum föstudegi. GDRN og Magnús Jóhann enda þáttinn á laginu Hvít jól.
- 12
5. desember 2025
Baggalútur og Júníus Meyvant opna þáttinn á laginu Jólainnkaupin. Gestir þáttarins eru Benedikt Erlingsson, Ingibjörg Iða Auðunardóttir og Vilhelm Neto. Loji Höskuldsson kynnir Kærleikskúlu ársins. Trine Dyrholm kíkir í sófann og flytur lagið Smuk som et stjerneskud. Berglind Festival "rawdoggar" jólin. Inspector Spacetime og Sykur enda þáttinn á laginu Draumur okkar beggja.
- 13
12. desember 2025
Gestir þáttarins Auðunn Blöndal, Katrín Jakobsdóttir og Mikael Kaaber. Retro Stefson flutti jólaútgáfu af laginu Velvakandasveinn. Sigríður Thorlacius, Guðmundur Óskar og Tómas Jónsson flytja lagið Ef ég nenni með sínu nefi. Berglind Festival hefur áhyggjur af framtíð íslenska jólamatarins. Retro Stefson og Hildur Vala enda þennan jólaþátt á laginu Fyrir jól.
- 14
19. desember 2025
Jólalagaþáttur Vikunnar með Gísla Marteini. Gísli, Berglind Festival og Snorri Helgason rifja upp gömul jólalög úr Vikunni til þess að koma sér í jólaskap. Snorri Helga flytur lagið Bara ef ég væri hann í lok þáttar ásamt Valdimar og Berndsen.
- 15
Árið með Gísla Marteini 2025
Gestir þáttarins eru Árni Helgason, Bergsteinn Sigurðsson, Elísabet Inga Sigurðardóttir, Anna Svava Knútsdóttir, Jón Jónsson, Kristrún Frostadóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og engin önnur en Laufey Lín. Atli Fannar fer yfir Fréttir Ársins. Berglind Festival fer yfir árið á internetinu. Manneskjur ársins koma í viðtal en samkvæmt Vikunni eru það starfsmenn og sjálfboðaliðar sem vinna við skaðaminnkandi úrræði. Steini og Silva flytja lagið Hvað ertu að gera á gamlárs? Laufey flytur lagið Silver Lining. Árný endar þáttinn á laginu Hin gömlu kynni.
- 16
16. janúar 2026
Gestir þáttarins eru Kristinn Óli Haraldsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Ólafur Stefánsson. Kári Egils og hljómsveit opna þáttinn á lagi Magga Eiríks, Braggablús. Berglind Festival fer á stúfana á handboltavellinum. Í miðjum þætti er óvænt uppbrot frá Ormstungu í Þjóðleikhúsinu. Kári Egils og hljómsveit ljúka þættinum með laginu Highflyer.
- 17
23. janúar 2026
Gestir þáttarins eru Birna Rún Eiríksdóttir, Edda Björgvinsdóttir og Freyr Eyjólfsson. Friðrik Ómar og Guðrún Gunnars brjóta upp þáttinn með þorrablóti og laginu Ég skemmti mér. Berglind Festival fjallar um topp tíu merkilegustu hluti sem karlar hafa gert, í tilefni bóndadagsins. Tatjana og Birnir enda þáttinn á laginu Efsta hæð.
- 18
6. febrúar 2026
Gestir þáttarins eru Ebba Katrín Finnsdóttir, Gunnar Hilmarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Í miðjum þætti er tónlistaratriði úr söngleiknum Mergur. Berglind Festival fjallar um blíðviðrið í janúar síðastliðnum. Izleifur og Elín Hall flytja lagið Hugsa alltof mikið í lok þáttar.
- 19
13. febrúar 2026
Gestir þáttarins eru Ari Eldjárn, Mikael Torfason, Margrét Erla Maack og John Grant. John Grant tekur lagið við flygilinn. Berglind Festival fjallar um flokkaflakk stjórnmálamanna. Tónlistarmaðurinn Andervel flytur lagið Foxglove í lok þáttar.
- 20
20. febrúar 2026
Gestir þáttarins eru Kristján Kristjánsson, Unnur Arna Borgþórsdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. KK og hljómsveit brjóta upp þáttinn með laginu Lífið er. Hljómsveitin Valdimar opnar þáttinn með laginu Yfir borgina og lokar þættinum með frumflutningi á laginu Tenerife. Berglind Festival ræðir við leikskólabörn um leikskólamálin.
- 21
27. febrúar 2026
Gestir þáttarins eru Eva Ruža, Tolli Morthens og Hákon Jóhannesson. Þátturinn í heild sinni er í umsjón Berglindar Festival. Í miðjum þætti er uppbrot úr óperunni Carmen. Innslag Berglindar Festival fjallar um nýtt almanak. Hljómsveitin Amor Vincit Omnia slær botninn í þáttinn með laginu Ber.
- 22
6. mars 2026
Gestir þáttarins eru Eva Björg Ægisdóttir, Unnsteinn Manuel Stefánsson og Víkingur Heiðar Ólafsson. Þátturinn er í umsjón Berglindar Festival. Unnsteinn Manuel frumflytur lagið Bergnuminn. Víkingur Heiðar flytur stutt lag eftir Bach. Innslag Berglindar Festival fjallar um framtíð gervigreindarinnar. AL0R1AN, Alaska1867 og Gross flytja lagið Týnda kynslóðin í lok þáttar.
- 23
13. mars 2026
Gestir þáttarins eru Ari Eldjárn, Mikael Torfason, Margrét Erla Maack og John Grant. John Grant tekur lagið við flygilinn. Berglind Festival fjallar um flokkaflakk stjórnmálamanna. Tónlistarmaðurinn Andervel flytur lagið Foxglove í lok þáttar.
- 24
20. mars 2026
Gestir þáttarins eru Kristján Kristjánsson, Unnur Arna Borgþórsdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. KK og hljómsveit brjóta upp þáttinn með laginu Lífið er. Hljómsveitin Valdimar opnar þáttinn með laginu Yfir borgina og lokar þættinum með frumflutningi á laginu Tenerife. Berglind Festival ræðir við leikskólabörn um leikskólamálin.
- 25
27. mars 2026
Gestir þáttarins eru Eva Ruža, Tolli Morthens og Hákon Jóhannesson. Þátturinn í heild sinni er í umsjón Berglindar Festival. Í miðjum þætti er uppbrot úr óperunni Carmen. Innslag Berglindar Festival fjallar um nýtt almanak. Hljómsveitin Amor Vincit Omnia slær botninn í þáttinn með laginu Ber.
- 26
10. apríl 2026
Gestir þáttarins eru Glódís Perla Viggósdóttir, Patrekur Jaime og Sóli Hólm. Þátturinn hefst á flutningi Memfismafíunnar á laginu Ég syng fyrir þig til heiðurs Björgvini Halldórssyni. Vigdís Hafliðadóttir og félagar flytja vorlega vísu. Berglind Festival ræðir við oddvitana í Reykjavík undir sæng. FLOTT og Arnór og Óli Gunnar enda þáttinn á lagasyrpu úr nýju þáttunum 20 og eitthvað.
- 27
17. apríl 2026
Gestir þáttarins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Árný Margrét frumflytur lagið In a Dream. Seinni hluti Koddvitahjals Berglindar Festival er sýnt. Anna Róshildur lokar þættinum með laginu Endir.
- 28
24. apríl 2026
TBA
- 29
1. maí 2026
TBA
- 1
20. september 2024
Gestir kvöldsins eru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, Bergur Ebbi Benediktsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Berglind Festival bregður sér í gervi hins íslenska nútímamanns. GDRN og Baggalútur frumflytja nýtt lag - Hjuts ess bansi.
- 2
27. september 2024
Gestir kvöldsins eru Benedikt Erlingsson, Mari Järsk og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Berglind Festival kynnir sér orðræðuna á facebook. Söngkonan Lúpína lokar þættinum með lögum af nýútgefinni plötu sinni Marglytta.
- 3
4. október 2024
Gestir þáttarins eru Dóri DNA, Birna Rún Eiríksdóttir og Hörður Magnússon. Berglind Festival kannar afdrif seðlaveskisins. Hljómsveitin Supersport! lokar þættinum með laginu gráta smá.
- 4
11. október 2024
Hljómsveitin Sykur opnar þáttinn með laginu Reykjavík. Gestir þáttarins eru Jakob Birgisson, Ólafur Darri Ólafsson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. Berglind Festival bjargar íslenska ferðamannaiðnaðinum. Sykur lokar þættinum með nýjasta lagi sínu, Pláneta Y.
- 5
18. október 2024
Gestir þáttarins eru Ólafur Ásgeirsson, Saga Garðarsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson. Berglind Festival fjallar um starfsstétt sem oft er lítillækkuð í þjóðfélaginu. Snorri Helgason lokar þættinum með laginu Aron.
- 6
25. október 2024
Gestir þáttarins eru Hallgrímur Helgason, Hildur Guðnadóttir og Rán Flygenring. Berglind Festival leitar svara hjá þjóðinni um hin ýmsu kosningamál. Moses Hightower flytja lagið Óskaland úr samnefndu leikriti Borgarleikhússins ásamt aðalleikurum verksins.
- 7
8. nóvember 2024
Gestir þáttarins eru Dagur Hjartarson, Helga Braga Jónsdóttir og Jakob Bjarnar Grétarsson. Berglind Festival hefur kosningaumfjöllun sína og kynnir til leiks raunveruleikaþættina Atkvæðið er blint. ÁSDÍS lokar þættinum með laginu Beat of your heart.
- 8
15. nóvember 2024
Gestir þáttarins eru Yrsa Sigurðardóttir, Bubbi Morthens og Hildur Vala Baldursdóttir. Berglind Festival sýnir annan þáttinn úr þriggja þátta seríunni Atkvæðið er blint. Hljómsveitin CYBER og Jónsi loka þættinum með laginu The Event.
- 9
22. nóvember 2024
Gestir þáttarins eru Gauti Þeyr Másson, Hulda Þórisdóttir og Sandra Barilli. „Ellý og Raggi Bjarna“ úr Borgó flytja jólalagasyrpu. Berglind Festival sýnir lokaþáttinn af Atkvæðið er blint. Baggalútur og Sigga Beinteins loka þættinum með laginu Hótel á aðfangadag.
- 10
29. nóvember 2024
Gestir kvöldsins eru Jóhannes Haukur Jóhannesson, Lóa Björk Björnsdóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Ólöf Þ. Harðardóttir mætir með greiningu á kappræðunum. Berglind Festival tók viðtöl við alla formenn flokkanna og enginn var falskur. GDRN og Magnús Jóhann taka þátt í umræðum og flytja þrjú jólalög af nýútgefinni plötu sinni. Bríet tók lagið Veðrið er herfilegt með þeim í lokin.
- 11
13. desember 2024
Gestir þáttarins eru biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Steinþór Hróar Steinþórsson. Daði Freyr flytur tvö jólalög í þættinum, annars vegar Komdu um jólin og hins vegar lagasyrpu. Siggi Gunnars kynnir inn sigurvegara Jólalagakeppni Rásar 2, hljómsveitina FLOTT. Þær flytja svo sigurlagið Ó, Grýla taktu þér tak. Festival fólksins finnur jólaandann í verslunarmiðstöð.
- 12
20. desember 2024
Gestir í jólaþætti Vikunnar eru Egill Helgason, Una Torfa, Hannes Þór, Nína Dögg, Gísli Örn, Logi Pedro og Unnsteinn Manuel. Guðný Ljósbrá framreiðir dýrindis mat og drykki fyrir gesti. Retro Stefson tóku lagið Kimba í upphafi þáttar og enduðu síðan þáttinn á Klukknahreim.
- 13
Árið með Gísla Marteini 2024
Gestir Ársins með Gísla Marteini eru Bergsteinn Sigurðsson, Kristín Ólafsdóttir, Guðmundur Pálsson, Glódís Perla Viggósdóttir, Gunnar Helgason, Katrín Jakobsdóttir, Ragnar Kjartansson, Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Álitsgjafar Vikunnar fara yfir árið. Berglind Festival fer á stúfana á jólanótt og ræðir við dýrin um árið sem er að líða. Laufey flytur lagið Promise en dómnefnd Vikunnar valdi Laufeyju sem manneskju ársins 2024. Gísli ræðir við hana og síðan endar Laufey þáttinn með laginu Hin gömlu kynni gleymast ei.
- 14
10. janúar 2025
Gestir þáttarins eru Elín Hall, María Reyndal og Jóhann Páll Jóhannsson. Berglind Festival kynnir sér inflúensuna. Tónlistarkonan Hildur lokar þættinum með laginu Dúnmjúk.
- 15
17. janúar 2025
Gestir þáttarins eru Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Daníel Ágúst Haraldsson og Logi Geirsson. Berglind Festival kynnir sér stöðvun staðreyndavöktunar á samfélagsmiðlum. Soffía Björg flytur lagið Draumur að fara í bæinn.
- 16
31. janúar 2025
Gestir þáttarins eru Þuríður Blær, Helgi Seljan og Þorsteinn J. Festival fólksins reynir að sjá ljósið í janúarmyrkrinu. Joey Christ sér um tónlistaratriði kvöldsins og frumflytur lagið Trip ásamt Alviu Islandia.
- 17
7. febrúar 2025
Gestir þáttarins eru Dagur Sigurðsson, Níels Thibaud Girerd og Ísadóra Bjarkardóttir Barney. Ísadóra og hljómsveitin Púki flytja lagið Stærra úr kvikmyndinni Fjallið. Berglind Festival fer á stúfana í óveðrinu. Bjartar sveiflur sjá um tónlistaratriði kvöldsins og flytja tvö lög, Bíóstjarnan mín í upphafi þáttar og enda þáttinn á Tell me!
- 18
14. febrúar 2025
Gestir þáttarins eru Jón Gnarr, Vala Kristín Eiríksdóttir og Björg Magnúsdóttir. Festival fólksins fjallar um ástina. Margir óvæntir gestir kíkja í heimsókn. Floni flytur blöndu af lögunum Þráhyggja og Svefnlaus í lok þáttar.
- 19
21. febrúar 2025
Gestir þáttarins eru Eva Laufey Kjaran, Kormákur Geirharðsson og Unnur Ösp Stefánsdóttir. Leikhópurinn úr söngleiknum Stormi kíkja í heimsókn. Berglind Festival kynnir sér símhringingar. K.óla og hljómsveit loka þættinum með laginu Vinátta okkar er blóm.
- 20
28. febrúar 2025
Gestir þáttarins eru Hildigunnur Birgisdóttir, Pétur Jóhann Sigfússon og Sigurður Ingvarsson. Berglind Festival rannsakar fýlusvipinn. HAM og Apparat eða HAMPARAT enda þáttinn á laginu 123 Forever. Þeir fluttu einnig upphafsstef þáttarins með sínu nefi.
- 21
7. mars 2025
Gestir þáttarins eru Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir og Svala Björgvinsdóttir. Við lok frétta Vikunnar kemur Lilja frá Endósamtökunum og lætur Daniil og Birni prófa „túrverki“. Berglind Festival kynnir: Sjö undur Íslands. Daniil og Birnir loka þættinum með laginu Hjörtu.
- 22
14. mars 2025
Gestir þáttarins eru Hjálmar Örn Jóhannsson, Ragnar Ísleifur Bragason og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir. Berglind Festival heldur áfram að kynna fyrir okkur sjö undur Íslands. Hljómsveitin Spacestation opnar þáttinn á upphafsstefinu Skokk og loka síðan þættinum með lagi sínu Loftið.
- 23
21. mars 2025
Gestir þáttarins eru Patrekur Jaime, Salka Sól Eyfeld og Sigurður Lárus Hall. Kári Egils flytur upphafsstef Vikunnar og lagið Carry you home í lok þáttar ásamt hljómsveit. Berglind Festival frumflytur lokaþátt seríunnar um Sjö undur Íslands.
- 24
28. mars 2025
Gestir þáttarins eru Dóra Júlía Agnarsdóttir, Eliza Reid og Sóli Hólm. Berglind Festival kynnir sér fermingarveislur. Hljómsveitin Dream Wife slær botninn í þáttinn með laginu Hot (don't date a musician).
- 25
4. apríl 2025
Gestir þáttarins eru Arnar Gunnlaugsson, Hanna Katrín Friðriksson og Þórey Birgisdóttir. Berglind Festival ræðir við þjóðina um kúltúrbörn. Leikhópurinn úr Litlu hryllingsbúðinni flytur lagið Da dú í upphafi þáttar og lokar svo þættinum með laginu Snögglega Baldur.
- 26
11. apríl 2025
Gestir þáttarins eru Ari Eldjárn, Hjörvar Hafliðason og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir. Íslenski dansflokkurinn og skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar flytja brot úr verkinu Hringir Orfeusar og annað slúður. Berglind Festival fjallar um nýju ráðleggingar Landlæknis um mataræði. Inspector Spacetime loka þættinum með laginu Catch Planes.
- 27
25. apríl 2025
Gestir þáttarins eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Kristjana Arnarsdóttir og Jógvan Hansen. Brynhildur Guðjónsdóttir sviptir hulunni af leikurunum í nýja söngleik Borgarleikhússins Moulin Rouge. Berglind Festival kynnir sér hið íslenska sumar. Strákarnir í VÆB flytja lögin Gísli Marteinn og Róa.
- 28
2. maí 2025
Í þessum síðasta þætti vetrarins fær Gísli Marteinn til sín þau Boga Ágústsson, Kristrúnu Frostadóttur og Guðjón Davíð Karlsson. Tónlistarkonan Bríet flytur nýtt lag af væntanlegri plötu. Farið er yfir veturinn í máli og myndum.
- 1
29. september 2023
Gestir kvöldsins eru Jóhannes Þ. Skúlason, Hera Hilmarsdóttir og Pavel Ermolinskij. Í fréttum Vikunnar heilsum við upp á sænskan góðkunningja. Það kemur í ljós hvaða leikarar munu leika prinsessurnar í söngleiknum Frost. Berglind Festival skoðar nýja og villta tegund sem í sumar hefur verið sérstaklega áberandi í íslenskri náttúru; skellihlæjandi með flösku af kampavíni í annarri og veiðistöng í hinni. Birnir & Gus Gus flytja lagið ...eða?
- 2
13. október 2023
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Berglind Häsler, Aníta Briem og Sóli Hólm. Berglind Festival kannar hvort áfengisneysla sé virkilega jafn slæm og vísindin vilja meina. Bubbi Morthens ásamt hljómsveit frumflytur lagið Holan af nýútgefinni plötu. Einnig tekur hann lagið Sumar konur í upphafi þáttar.
- 3
20. október 2023
Gestir kvöldsins eru Fannar Sveinsson, Halldóra Geirharðsdóttir og Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Berglind Festival kynnir Festival fólksins til leiks, þar ræðir hún við unga menn um konur og kvennamál. Hipsumhaps flytur lagið Góðir hlutir gerast hææægt ásamt leynigesti í enda lagsins.
- 4
27. október 2032
Gestir kvöldsins eru Dóra Takefusa, Guðmundur Felixson og Inga Lind Karlsdóttir. Berglind Festival fjallar um geitur. Nanna sér um tónlistaratriði kvöldsins og flytur lagið The Vine.
- 5
3. nóvember 2023
Gestir kvöldsins eru Sandra Barilli, Rán Flygenring og Sigursteinn Másson. Berglind Festival rannsakar slettur og slangur unglinga. Daði Freyr sér um tónlistaratriði kvöldsins og flytur lagið Bitte.
- 6
10. nóvember 2023
Gestir kvöldsins eru Jakob Birgisson, Ólafur Jóhann Ólafsson og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Berglind Festival rannsakar lista einhleypra og eftirsóttra og hvort þeir þyki verðugt fréttaefni. Hljómsveitin Sucks to be you, Nigel sér um tónlistaratriði kvöldsins og flytur lagið Spaceman.
- 7
17. nóvember 2023
Gestir kvöldsins eru Linda Pétursdóttir, Þorsteinn Guðmundsson og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Berglind Festival kynnir sér íslenskar glæpasögur. Róshildur sér um tónlistaratriði kvöldsins og flytur lagið Fólk í blokk.
- 8
24. nóvember 2023
Gestir kvöldsins eru Gauti Þeyr Másson (Emmsjé Gauti), Karen Björg Eyfjörð Þorsteinsdóttir og Sigríður Hagalín Björnsdóttir. Berglind Festival veltir fyrir sér þakklætinu. Inspector Spacetime og Joey Christ flytja lagið Inspector Spacetime Saves The Human Race.
- 9
1. desember 2023
Gestir kvöldsins eru Bríet Ísis Elfar, Ebba Katrín Finnsdóttir og Sigurður Þorri Gunnarsson. Berglind Festival kynnir sér landnám Íslendinga. Patri!k flytur lagið Prettyboi um jólin í upphafi þáttar og FM Belfast lokar þættinum með laginu París Norðursins.
- 10
8. desember 2023
Gestir kvöldsins eru Bergrún Íris Sævarsdóttir, Tómas R. Einarsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir. Haraldur Þorleifsson kynnir Kærleikskúlu ársins. Bogomil Font og Millarnir flytja jólalögin Majónes jól og Hinsegin jólatré. Berglind Festival stingur sér á bólakaf í jólabókaflóðið.
- 11
15. desember 2023
Gestir kvöldsins eru Jón Jósep Snæbjörnsson, Matthías Tryggvi Haraldsson og Tinna Hrafnsdóttir. Berglind Festival endurhannar jólin. Tina Dickow og Helgi Hrafn Jónsson flytja lagið River í upphafi þáttar. Jónsi og Stórsveit verkalýðsins loka þættinum með laginu Jólin eru að koma.
- 12
22. desember 2023
Gestir hjá Gísla og Berglindi eru Birta Líf Kristinsdóttir, Friðrik Dór Jónsson, Jón Jónsson, Júnía Lín Jónsdóttir, Laufey Lín Jónsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Gunnar Karl Gíslason. Laufey flytur lögin From The Start og Better Than Snow. Leynigestur ber að dyrum og við sýnum jólalög úr þáttum fyrri ára: Æskujól - Salka Sól Jólabróðir - Jón Jónsson og Friðrik Dór Komi desember - Reykjavíkurdætur Gleði og friðarjól - Valdimar Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin - Tvíhöfði Jólin eru að koma - Rúnk
- 13
Árið með Gísla Marteini 2023
Gestir Ársins með Gísla Marteini eru Bergsteinn Sigurðsson, Grétar Sveinn Theodórsson, Kristín Ólafsdóttir, Kristrún Frostadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson Guðmundur Felixson, Sandra Barilli og Vigdís Hafliðadóttir. Auk þess sviptum við hulunni af manneskju og viðburði ársins. Dómnefnd Vikunnar valdi Skína sem lag ársins og var það flutt í þættinum. Berglind ræðir við Völvu Vikunnar með Gísla Marteini og fær góða gesti til að bregðast við spá hennar. Hafdís Huld endar þáttinn með fallegum flutningi á laginu Hin gömlu kynni.
- 14
19. janúar 2024
Gestir kvöldsins eru Dagur B. Eggertsson, Ilmur Kristjánsdóttir og Pétur Jóhann Sigfússon. Berglind Festival kannar álfatrú Íslendinga. Hljómsveitin Kvikindi frumflytur lagið Úthverfi ásamt leynigesti.
- 15
26. janúar 2024
Gestir kvöldsins eru Ingibjörg Sólrún, Kristín Þóra og Gunnar Hansson. Berglind Festival kynnir sér hvernig þjóðinni gengur að standa við áramótaheitin. GDRN flytur lagið Parísarhjól í upphafi þáttar og lýkur síðan þættinum með splunkunýju lagi, laginu Ævilangt ásamt kórnum Aurora.
- 16
9. febrúar 2024
Gestir kvöldsins eru Helga Braga Jónsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Telma Lucinda Tómasson. Páll Óskar brýtur upp þáttinn með flutningi á laginu Elskar þú mig ennþá? Berglind Festival fer á stúfana í nýja skrifstofuhúsnæði Alþingis. Klemens Hannigan og hljómsveit loka þættinum með laginu No Time To Get Heartbroken.
- 17
16. febrúar 2024
Gestir kvöldsins eru Patrekur Jaime, Ragnar Kjartansson og Svandís Dóra Einarsdóttir. Berglind Festival kannar hin ýmsu málefni eldri borgara. Logi Pedro og Huginn flytja lagið Englar alheimsins í lok þáttar.
- 18
23. febrúar 2024
Gestir kvöldsins eru Björn Thors, Emilíana Torrini og Tobba Marinósdóttir. Vígdís Hafliðadóttir sest einnig í sófann og flytur norska vísu fyrir áhorfendur. Berglind Festival fer á stúfana og kannar föstur. Hljómsveitin FLOTT lýkur þættinum með laginu Við sögðum aldrei neitt.
- 19
1. mars 2024
Gestir kvöldsins eru Arnar Freyr Frostason, Kristján Jóhannsson og Vala Kristín Eiríksdóttir. Berglind Festival skoðar einn helsta menningararf þjóðarinnar: íslenska fylleríið. Haraldur Þorleifsson bætist við hópinn. Önnu Jónu Son og hljómsveit enda þáttinn á laginu True Love Will Find You In The End.
- 20
8. mars 2024
Gestir kvöldsins eru Anna Svava Knútsdóttir, Helga Margrét Höskuldsdóttir og Katrín Jakobsdóttir. Pollapönk, Einar Stefánsson og Bashar Murad flytja bút úr laginu Burtu með fordóma. Berglind Festival rannsakar páskaegg og páskahefðir. Hljómsveitin Ex.girls flytur lagið Manneskja.
- 21
15. mars 2024
Þátturinn hefst á óvæntu upphafi en gestir kvöldsins eru Helgi Björnsson, Lóa Björk Björnsdóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir. Helgi Björns frumflytur nýtt lag ásamt fríðu föruneyti. Berglind Festival kynnist nokkrum forsetaframbjóðendum. Floni endar þáttinn á laginu Engill.
- 22
22. mars 2024
Gestir kvöldsins eru Jón Gnarr, Halla Hrund Logadóttir og Hilmar Guðjónsson. Festival fólksins fjallar um páskahátíðina. JóiPé og Króli flytja glænýju lögin FOS og Í fullri hreinskilni ásamt strengjakvartett, skólakór Kársnesskóla og danska rapparanum Ussel.
- 23
5. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ari Eldjárn, Svandís Svavarsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson. Gummi Ben kíkir óvænt í heimsókn og lýsir nýjustu tíðindum í forsetakosningunum. Hljómsveitin BSÍ lýkur þættinum með nýjasta lagi sínu lily (hot dog) en þau hófu einnig þáttinn á sinni útgáfu af upphafsstefi Vikunnar, laginu Skokk.
- 24
12. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Egill Helgason, Baltasar Kormákur og Margrét Erla Maack. Berglind Festival kynnir sér íslensku brauðtertuna. Una Torfa sér um tónlistaratriði kvöldsins og frumflytur lagið Yfir strikið.
- 25
19. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Aron Már Ólafsson, Erpur Eyvindarson og Júlíana Sara Gunnarsdóttir. Berglind Festival kynnir sér pabbabrandara. Hljómsveitin CYBER og Tatjana loka þættinum með nýjasta lagi sínu, I don't wanna walk this earth.
- 26
26. apríl 2024
Gestir kvöldsins eru Ása Ninna Pétursdóttir, Gísli Örn Garðarsson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Við sýnum brot af því besta sem þessi níunda sería hafði upp á að bjóða. Unun og Páll Óskar enda veturinn með laginu Ástin dugir.
- 1
9. september 2022
Gestir þáttarins eru Mugison, Hjálmar (Hjammi) Örn Jóhansson og Margrét Vilhjálmsdóttir. Mugison opnar þáttinn með lagið Sólin er komin. Upp á síðkastið hefur orðið bakslag í jafnréttismálum samkvæmt Berglindi Festival sem hefur áhyggjur af þróun mála. Ákveðinn þjóðfélagshópur sé sífellt talaður niður og smættaður og jafnvel mætti segja að veist væri að honum úr öllum áttum. Hér er hún að vísa í þjóðfélagshópinn karlmenn. Berglind fór yfir málið í Vikunni. Í lokinn tók Mugison lagið Haustdansinn.
- 2
16. september 2022
Gestir þáttarins eru Birna Pétursdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir. Við kynnumst átakinu Sendum hlýju þar sem fólk er að prjóna sokka fyrir Úkraínu. Berglind Festival rannsakar hvað hefur orðið um gosbrunna í Reykjavík. Í lok þáttarins tekur Snny lagið Good Times.
- 3
23. september 2022
Gestir þáttarins eru Hera Hilmarsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir og Sigmar Guðmundsson GDRN og Magnús Jóhann Ragnarsson opna þáttinn með laginu Einhvers staðar einhvern tímann aftur og flytja seinna í þættinum Hvert örstutt spor. Berglind Festival ætlar að berjast fyrir nýjum frídegi á haustinn. Í lok þáttarins tekur Vök lagið Something Bad.
- 4
30. september 2022
Gestir þáttarins eru Björn Jörundur, Sigurjón Sighvatsson og Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir. Berglind Festival skoðar hjólaþjófnað. Í lok þáttarins flytur Of Monsters And Men lagið This Happiness.
- 5
14. október 2022
Gestir kvöldsins eru Unnur Ösp Stefánsdóttir, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Halldór Guðmundsson. Tónlistaratriði er að þessu sinni frá Unnsteini og Hermigervli ásamt Luis Lucas með lagið Púki. Berglind Festival kynnir sér óvenjulega Facebook hópa.
- 6
21. október 2022
Gestir kvöldsins eru Laufey, Jóhannes Haukur Jóhannesson og Sigurður Þorri Gunnarsson. Laufey er einnig með tónlistaratriði kvöldsins þar sem hún tekur lagið Valentine. Að þessu sinni fjallar Berglind Festival um eftirlitsmyndavélar í samfélaginu.
- 7
28. október 2022
Hrekkjavökustemming þetta kvöldið í Vikunni hjá Gísla Marteini. Gestir kvöldsins eru þau Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, Jakob Birgisson og Stefán Jón Hafstein. Elín Hall og Magnús Jóhann opna þáttinn með laginu Garún. JóiPé lokar þættinum með glænýju lagi Fram í rauðan dauðann. Að þessu sinni fjallar Berglind Festival um heimsmeistaramótið í Fischer slembi-skák.
- 8
4. nóvember 2022
Gestir þáttarins eru Hanna Birna Kristjánsdóttir, Tobba Marinós og Matthías Tryggvi Haraldsson. Benni Hemm Hemm, Urður og Kött Grá Pjé flytja lagið Á óvart. Berglind Festival gengur í það að afsanna mýtur sem okkur voru sagðar í barnæsku.
- 9
11. nóvember 2022
Í sófanum að þessu sinni eru þau Edda Falak, Freyr Eyjólfsson og Bergþór Másson. Berglind Festival fjallar um landsfundi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Tónlistaratriði kvöldsins er Una Torfa með lagið Fyrrverandi.
- 10
18. nóvember 2022
Í þætti kvöldsins eru Katrín Jakobsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Tyrfingur Tyrfingsson gestir í sófa. Berglind Festival fer á stúfana og fjallar um rjúpnaveiðar. The Vintage Caravan loka svo þættinum með laginu Can?t get you off my mind.
- 11
25. nóvember 2022
Vikan fagnar sínum 200. þætti og sendir út frá Tjarnarbíói. Í þætti kvöldsins eru Birgitta Haukdal, Jón Gnarr, Vigdís Hafliðadóttir gestir í sófa. Berglind Festival fer á stúfana í beinni útsendingu á sviðinu og kynnir sér tískulöggur. Berndsen lokar svo þættinum með laginu Supertime.
- 12
2. desember 2022
Í sófanum að þessu sinni eru þau Kristrún Frostadóttir, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Vala Kristín Eiríksdóttir Berglind Festival fer á stúfana og skoðar jóladagatöl. Tvö glæný jólalög eru tónlistaratriði kvöldisins. Annars vegar lagið Jólabróðir með jólabræðrunum Jóni Jónssyni og Friðriki Dór og hins vegar lagið Meira myrkur með Dr. Gunna og Kristjönu Stefánsdóttur.
- 13
16. desember 2022
Í þessum jólaþætti Vikunnar með Gísla Marteini mæta margir frábærir gestir. Gunnar Erik Snorrason og Kría Burgess sem leika í Jóladagatalinu 2022 opna þáttinn sem Gísli Marteinn og Berglind Festival. Í sófanum eru Emmsjé Gauti, Halldór Gylfason og Sigrún Eðvaldsdóttir. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir segir okkur frá Kærleikskúlu 2022. Berglind Festival spjallar við Harald Þorleifsson um rampa sem verið er að setja um allt land. Berglind fer einnig á stúfana og ræðir við nokkur börn á aldrinum 3-5 ára um jólin. Tvö frábær tónlistaratriði stigu á stokk en það voru hljómsveitin Rúnk með lagið Jólin erað koma og Ellen Kristjánsdóttir með Jólasyrpu. Ásamt Ellen Kristjánsdóttur voru þær Kristjana Stefánsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Guðrún Gunnarsdóttir.
- 14
Árið með Gísla Marteini 2022
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða.
- 15
13. janúar 2023
Í þessum fyrsta þætti ársins eru Ari Eldjárn, Ólafur Stefánsson og söngkonan Ásdís gestir í sófa. Ásdís er einnig með tónlistaratriði kvöldsins og tekur lagið Release með aðstoð dragdrottningarinnar Faye Knús. Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar hjátrú okkar Íslendinga.
- 16
27. janúar 2023
Í sófanum að þessu sinni eru þau Einar Bárðarson, Elsa María Jakobsdóttir og Óttarr Proppé. Berglind Festival fer á stúfana og fjallar um landsliðið. Emmsjé Gauti frumflytur lagið FOKKA SHITTI UPP.
- 17
3. febrúar 2023
Gestir kvöldsins eru Svandís Svavarsdóttir, Vivian Ólafsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Berglind Festival tekst á við eina stærstu spurningu samtímans: Er siðferðislega réttlætanlegt að halla sætinu í flugvél? Inspector Spacetime og Unnsteinn frumflytja lagið Kysstu mig.
- 18
10. febrúar 2023
Í sófanum að þessu sinni eru þau Bubbi Morthens, Margrét Erla Maack og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar morgunleikfimi. Hljómsveitin FLOTT flytur lagið Hún ógnar mér.
- 19
17. febrúar 2023
Gestir kvöldsins eru Hilmar Guðjónsson, Ingibjörg Stefánsdóttir og Þóra Arnórsdóttir. Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar sveppi. Söngkonan Lúpína flytur lagið Tveir mismunandi heimar.
- 20
24. febrúar 2023
Í sófanum að þessu sinni eru þau Víðir Reynisson, Guðjón Davíð Karlsson og Kristín Ólafsdóttir. Berglind Festival fer á stúfana og skoðar strákasveitir. Kári Egilsson flytur lagið Something Better.
- 21
3. mars 2023
Gestir kvöldsins eru Ásta Fjeldsted, Edda Björgvinsdóttir og Gunnar Helgason. Berglind Festival kafar ofan í líf feðra á Íslandi. Júníus Meyvant og KK flytja lagið Skýjaglópur og þar að auki flytur Júníus Meyvant lagið Rise Up.
- 22
10. mars 2023
Í sófanum að þessu sinni eru þau Jón Ólafsson, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir og Anita Briem. Berglind Festival fer á stúfana og rannsakar kvef og pestir. Hljómsveitin Bjartar sveiflur flytur lögin Út á lífið og Í Reykjavíkurborg.
- 23
17. mars 2023
Gestir kvöldsins eru Sunna Valgerðardóttir, Hugleikur Dagsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Berglind Festival fer á stúfana og skoðar vídjóleigur. Langi Seli og skuggarnir flytja lögin OK og Kontinentalinn.
- 24
24. mars 2023
Í sófanum að þessu sinni eru þau Gunnar Nelson, Saga Garðarsdóttir og Ragnar Ísleifur Bragason. Berglind Festival fer á stúfana í nýjustu stórborg Íslands. Daniil og Friðrik Dór taka lagið Aleinn en Daniil flytur einnig lagið Ef þeir vilja beef ásamt Joey Christ.
- 25
31. mars 2023
Gestir kvöldsins eru Sigga Beinteins, Bergur Ebbi og Fanney Birna Jónsdóttir Berglind Festival fer á stúfana um verðin á papríkum. Jón Baldur Bogason mætir á svæðið og ræðir um mikilvægi þess að karlmenn fari í krabbameinskoðun. Hljómsveitin Kvikindi taka lagið Ungfrú Ísland.
- 26
14. apríl 2023
Að þessu sinni mæta þau Dóri DNA, Eygló Hilmars og Gísli Einarsson í sófann. Elín Hall opnar þáttinn ásamt bandi með laginu Er nauðsynlegt að skjóta þá? Berglind Festival fer á stúfana og fær gervigreind til að semja fyrir sig. Elín Hall tekur svo nýtt lag Júpíter ásamt GDRN og bandi í lok þáttar.
- 27
21. apríl 2023
Gestir þáttarins eru þau Vera Illugadóttir, Sverrir Þór Sverrisson og Einar Þorsteinsson. Berglind Festival fer á stúfana og fjallar að þessu sinni um skuggahliðar sumarsins á Íslandi. Tónlistaratriði kvöldsins er PATRi!K með lagið Prettyboitjokko.
- 28
28. apríl 2023
Þá er komið að síðasta þætti vetrarins. Í sófanum mæta þau Eliza Reid, Diljá Pétursdóttir, Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Felix Bergsson. Einnig mætir ritstjórn Vikunnar í sófann þau Bergsteinn Sigurðsson, Atli Fannar Bjarkason, Berglind Pétursdóttir og Ragnar Eyþórsson. Farið er yfir þau brot sem stóðu upp úr þennan veturinn ásamt því að fara yfir það besta frá henni Berglindi Festival. Diljá tekur tvö lög. Fyrra lagið er sænska Eurovision lagið frá árinu 2022, Hold me closer og seinna lagið er Power sem Diljá mun fara til Liverpool með í Eurovision í ár og keppa fyrir Íslands hönd.
- 1
10. september 2021
Gestir þáttarins voru þau Edda Falak, Grétar Theodórsson og Ólafur Þ. Harðarson. Gísli Marteinn fer yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir spyr Kringlu- og Mjóddargesti spurninga um frambjóðendur komandi kosninga. Hljómsveitin FLOTT lokar þættinum með laginu Þegar ég verð 36.
- 2
17. september 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Birta Líf Kristinsdóttir, Jakob Birgisson og Halldóra Geirharðsdóttir. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir plataði nokkra pólitíkusa í fluglínuna. Söngkonan Una Schram lokaði þættinum með frumflutningi á laginu Crush.
- 3
24. september 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Snorri Másson, Birgitta Birgisdóttir og Óttar Proppé. Gísli Marteinn fór yfir kosningafréttir daginn fyrir kosningar og Berglind Pétursdóttir tók leiðtoga flokkana tali í græna herberginu andartaki fyrir síðustu kappræður baráttunnar. Nýdönsk steig á stokk í lok þáttar og flutti lagið Ég kýs.
- 4
1. október 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru Margrét Erla Maack, Haraldur Þorleifsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival rannsakaði hvort tveir menn séu í raun einn og sami maðurinn. Pálmi Gunnarsson og hljómsveit hélt stuðinu uppi með gömlum og góðum slögurum.
- 5
8. október 2021
Gestir þáttarins voru Guðrún Ýr Jóhannesdóttir Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, Guðmundur Andri Thorsson og Vanda Sigurgeirsdóttir. GDRN flutti nýútgefið lag sitt, Næsta Líf ásamt tónlistarmanninum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni. Gísli Marteinn fór yfir allar helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir spjallaði við nöfnur og nafna fræga fólksins. Hljómsveitin kef LAVÍK og tónlistarmaðurinn Jói P. tóku lagið Strobe í lok þáttarins.
- 6
15. október 2021
Gestir þáttarins voru Helgi Seljan, Valgerður Matthíasdóttir (Vala Matt) og Björn Hlynur Haraldsson. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir tók stöðuna á einkanúmerum ökutækja. Hljómsveitin Draumfarir ásamt Kristínu Sesselju lokuðu þættinum með laginu Með þér.
- 7
22. október 2021
Gestir þáttarins voru þau Júlía Margrét Einarsdóttir, Eiður Smári Guðjohnsen og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. Gísli Marteinn Baldurssón fór yfir fréttir vikunnar að vanda í Vikunni á föstudag. Þar ræddi hann meðal annars um talningaklúðrið í Norðvesturkjördæmi og stöðuna á því máli, en Sigursteinn Másson mætti þá í settið og bað hann að víkja fyrir fagmanni í þeim fræðum. Þá reifaði hann sjálfur málið frá upphafi eins og honum einum er lagið, í sönnum íslenskum sakamálastíl. Berglind fór og kynnti sér allt það besta sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða og tónlistamaðurinn Birnir kom fram ásamt rapparanum Krabba Mane og saman fluttu þeir lögin Óviti og Slæmir ávanar. Þakið ætlaði að rifna af útvarpshúsinu þegar lamhúshettumennirnir náðu Gísla Marteini með sér út á gólfið.
- 8
29. október 2021
Gestir þáttarins voru Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Sólmundur Hólm og Hallgrímur Helgason. Katrín Halldóra opnaði þátt Vikunnar með ljúfum tónum, laginu Augun þín blá eftir Jón Múla ásamt sjö manna hljómsveit. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar þar sem Magnús Magnús Magnússon kom meðal annarra til sögu. Berglind krufði sögu kokteilsósunnar. Kaktus Einarsson flutti lagið One of those í lok þáttarins ásamt góðu gengi.
- 9
5. nóvember 2021
Gestir þáttarins voru Eliza Reid, Steinunn Sigurðardóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Laufey Lín Jónsdóttir. Laufey flutti lagið Like the Movies í lok þáttar.
- 10
12. nóvember 2021
Gestir þáttarins voru þau Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Þorlákur Kristinsson Morthens (Tolli) og Ari Eldjárn. Prins Póló og Hjálmar héldu uppi stemningunni með frábærum tónum. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir kenndi landanum að græða peninga á auðveldan máta.
- 11
19. nóvember 2021
Gestir þáttarins voru Ása Ninna Pétursdóttir, Kamilla Einarsdóttir og Guðni Ágústsson. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival hitti virka í athugasemdum á Facebook og Twitter. Dr. Gunni lokaði þættinum með laginu Aumingi með Bónuspoka.
- 12
26. nóvember 2021
Vikan með Gísla Marteini byrjaði ekki eins og vaninn er þetta föstudagskvöld. Emil nokkur í Kattholti henti umsjónarmanni á dyr sem endaði með miklum söng og dansi vinanna úr Smálöndunum. Gestir þáttarins voru Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Þórhallur Gunnarsson og Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival hitti nokkra knáa sendiherra. Laddi hringdi svo inn jólaskapið með splunkunýju jólalagi ásamt gömlum jólaslagara.
- 13
3. desember 2021
Gestir þáttarins voru þau Rán Flygenring, Gísli Örn Garðarson og Jón gnarr. Willum Þór Þórsson leit við í upphafi þáttarins. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival sýndi frá hundasýningunni Winter wonderland. Tvíhöfði flutti lagið Fyrirgefðu að ég rotaði þig um jólin og Valdimar flutti lagið Gleði og friðarjól.
- 14
10. desember 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru Eva Laufey Kjaran, Steiney Skúladóttir og Egill Helgason. Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar og Berglind Festival kynnti sér sögu smákökunnar. Það var öllu tjaldað til í tónlistinni en í upphafi þáttarins flutti Salka Sól nýtt jólalag sem kallast Æskujól og Reykjavíkurdætur lokuðu þættinum með laginu Koma jól sem er gamalt lag við splunkunýjan texta og útsendingu úr smiðju dætranna.
- 15
Jólalög Vikunnar með Gísla Marteini
Á aðventunni undanfarin ár hefur margt af fremsta tónlistarfólki þjóðarinnar komið í þáttinn Vikan með Gísla Marteini og troðið upp með jólalögum, ýmist nýjum eða gömlum. Mörg þessara laga hafa aldrei heyrst nema í þetta eina skipti. Nú hafa verið teknar saman nokkrar af þeim perlum, sem fluttar hafa verið í beinni útsendingu á föstudagskvöldum, í þennan jóla-gleðiþátt.
- 16
Árið með Gísla Marteini 2021
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða.
- 17
14. janúar 2022
TBA
- 18
21. janúar 2022
TBA
- 19
28. janúar 2022
TBA
- 20
4. febrúar 2022
TBA
- 21
11. febrúar 2022
TBA
- 22
18. febrúar 2022
TBA
- 23
25. febrúar 2022
TBA
- 24
4. mars 2022
TBA
- 25
11. mars 2022
TBA
- 26
18. mars 2022
TBA
- 27
25. mars 2022
TBA
- 28
1. apríl 2022
TBA
- 29
8. apríl 2022
Gestir: Katla Þórudóttir Njálsdóttir, Sigurjón Kjartansson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Tónlist: KUSK.
- 30
22. apríl 2022
Gestir: Arnar Gunnlaugsson, Halldór Laxness Halldórsson og Sunna Valgerðardóttir. Tónlist: Hilmir Snær og Humlarnir ásamt Brokk-kórnum.
- 31
29. apríl 2022
Lokaþáttur vetrarins. Gestir: Bríet, Elín Eyþórsdóttir, Elísabet Eyþórsdóttir, Fanney Birna Jónsdóttir, Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Sigríður Eyþórsdóttir og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
- 1
11. september 2020
Gísli Marteinn fékk til sín góða gesti í fyrsta þætti vetrarins. Leikkonan, skemmtikrafturinn og fyrrum flugfreyjan Helga Braga Jónsdóttir mætti í settið og fjallaði meðal annars um nýju þáttaseríuna, Kötlu, sem tekin var upp í miðjum Covid faraldri hér á landi. Ásamt Helgu voru í setti þeir Ari Bragi Kárason, trompetleikari og afreksíþróttamaður og Óttarr Proppé, tónlistarmaður, verslunarstjóri Bóksölu stúdenta og fyrrum stjórnmálamaður. Gísli fór yfir helstu og heitustu fréttir sumarsins og fékk þau Önnu Svövu Knútsdóttur og Berg Ebba Benediktsson til að taka ferðasumarið saman. Berglind Pétursdóttir kannaði stöðuna á íslenskum ferðamannaiðnaði og hljómsveitin Inspector Spacetime flutti lagið lagið Teppavirki í teppavirki Vikunnar en hljómsveitina skipa þau Egill Gauti Sigurjónsson, Vaka Agnarsdóttir og Elías Geir Óskarsson.
- 2
18. september 2020
Gestir kvöldsins í Vikunni með Gísla Marteini eru leikkonan Anita Briem, Andri Snær Magnason rithöfundur og Björk Vilhelmsdóttir. Högni Egilsson bætist svo í hópinn og tekur lagið Berglind Festival er að sjálfsögðu á sínum stað og rannsakar málefni líðandi stundar með sínum einstaka hætti. Loks kemur Herra Hnetusmjör með einvala lið tónlistarmanna og tekur lag af glænýrri plötu.
- 3
25. september 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Hilda Jana Gísladóttir fyrrverandi fjölmiðlakona og núverandi bæjarfulltrúi á Akureyri, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Örn Árnason leikari. Fótboltalandsliðskonurnar Elín Metta Jensen og Sveindís Jane Jónsdóttir komu í stutt spjall um boltann. Alma D. Möller landlæknir leit við þegar Gísli Fór yfir fréttir vikunnar. Berglind Pétursdóttir fór á bókamarkað og spjallaði við rithöfunda í því samhengi. Fram komu Þórarinn Eldjárn, Bergrún Íris Sævarsdóttir, Hildur Knútsdóttir, Gunnar Helgason og Bryndís Loftsdóttir. Kardimommubærinn sá um tónlistaratriði kvöldsins þar sem bæjarfógetinn Bastían, Kamilla litla, ræningjarnir þrír og Soffía frænka fluttu sérsamda syrpu.
- 4
2. október 2020
Gestir Vikunnar að þessu sinni voru grænkerinn Sólveig Eiríksdóttir, tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens og Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur. Berglind Pétursdóttir kom í settið og kynnti innslag Vikunnar, fyrsti hluti af þremur af sögu íslensks skemmtanalífs. Tónlistarkonan Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir eða Gugusar frumflutti lag sitt Röddin í klettunum en hún gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu aðeins 16 ára gömul. Ásamt Guðlaugu spilar Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur.
- 5
9. október 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þær Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Saga Garðarsdóttir leikkona og Ragnar Jónasson rithöfundur. Bóndanum Starkaði (Guðjón Davíð Karlsson) bregður fyrir í fréttum Vikunnar og forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson ávarpar þjóðina á tímum Covid-19. Berglind Pétursdóttir heldur áfram með sögu íslensks skemmtanalífs. Í þessum öðrum hluta af þremur fer Berglind yfir stríðsárin, Þórscafé og danssporin í Hollywood. Logi Pedró flutti lagið Sól af nýútgefinni plötu sinni Undir bláu tungli. Magnús Jóhann spilar undir á hljómborð og Bergur Einar á trommur.
- 6
16. október 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson, fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Tobba Marinósdóttir og Kjartan Atli Kjartansson, íþróttafréttamaður. Gísli fer yfir fréttir Vikunnar eins og vanalega og sýndur er þriðji og síðasti hluti sögu íslensks skemmtanalífs í umsjón Berglindar Pétursdóttur. Ilmur Dögg Níelsdóttir frá Endurlífgunarráði Íslands kennir nokkur handtök í hnoði í tilefni af alþjóðlega degi endurlífgunar þann 15. október. Frikki Dór spilar lagið í réttum hnoðtakti. Eivör Pálsdóttir flytur lagið sitt Let it come ásamt hljómsveit.
- 7
23. október 2020
Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þau Eva María Jónsdóttir, Freyr Eyjólfsson og Bjarni Harðarson. Gísli Marteinn fer yfir fréttir Vikunnar og bar þar hæst á góma meðal annars hlaup Helga Hrafns Gunnarsson alþingismanns úr pontu þegar jarðskjálfti að 5,7 að stærð reið yfir. Daði Freyr Eurovisionfari kom í viðtal í gegnum veraldarvefinn og Berglind Pétursdóttir fór á stúana líkt og vanalega en að þessu sinni fjallaði hún um grímuskyldu á tímum Covid. Lay Low og Eyþór Ingi litu við og fluttu lagið Aftur heim til þín ásamt hljómsveit.
- 8
30. október 2020
Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þau Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Níels Thibaud Girerd og Ólafur Jóhann Ólafsson. Það styttist í forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og Berglind er með nokkrar spurningar um málið. Gísli Marteinn fékk þrjá frambærilegustu Trump-eftirhermulistamenn landsins í Vikuna, þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Halldór Gylfason og Helgi Jean Cleassen. Hljómsveitin Ultraflex tók lagið Full of Lust í Vikunni með Gísla Marteini á útgáfudegi sinnar fyrstu hljómplötu.
- 9
6. nóvember 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Þóra Karítas Árnadóttir, rithöfundur og leikkona, Ólafur Darri Ólafsson leikari og Hulda Þórisdóttir stjórnmálafræðingur. Meðal umræðuefnis voru nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum milli þeirra Trumps og Bidens en ekki var ljóst hver bæri sigur úr býtum. Þóra Karítast sagði frá nýútgefinni bók sinni, Blóðberg, og Ólafur Darri fjallaði um hlutverk sitt í íslensku þáttaseríunni Ráðherrann. Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson fengu sér sæti í setti og sögðu frá áhugaverðum og duldum staðreyndum sem koma fyrir í Ráðherranum. Berglind Pétursdóttir Festival fór á stúfana líkt og vaninn er og kannaði ýmis tilbrigði fjarskemmtana á tímum Covid. Gleðisprengjurnar í Moses Hightower fluttu lagið Stundum af nýútkominni plötu þeirra Lyftutónlist.
- 10
13. nóvember 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Hildur Björnsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, Kristján Kristjánsson betur þekktur sem KK tónlistar- og útvarpsmaður og Salka Sól Eyfeld tónlistar- og athafnakona. Ellen Kristjánsdóttir systir KK bætist við í settið og tekur lagið I Think of Angels ásamt bróður sínum en lagið samdi KK í minningu systur þeirra, Inger, sem lést í bílslysi árið 1992. Gísli Marteinn fer yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir kannaði skákæðið sem virðist hafa gripið landann í kjölfar sjónvarpsþátta á Netflix. Hinar ástsælu hljómsveitir GusGus og Vök hafa leitt hesta sína saman og gáfu nýverið út lagið Higher.
- 11
20. nóvember 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Gunnar Helgason leikari, rithöfundur og skemmtikraftur, Bríet Ísis Elfar söngkona og Óttar Guðmundsson geðlæknir og rithöfundur. Berglind Festival fer yfir sögu jólanna í þriggja þátta jólaseríu. Í þessum fyrsta þætti kíkjum við í fjárhúsið í Betlehem og fræðumst um heiðin jól. Söngkonan Bríet flytur lagið Hann er ekki þú af plötu sem hún gaf út nýverið og hefur tröllriðið landanum. Atriðið vann hún í samstarfi við krassasig.
- 12
27. nóvember 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þær Helga Möller söngkona, Jóhanna Vigdís sjónvarpskona og Steingrímur J Sigfússon pólitíkus. Gísli Marteinn fer yfir fréttir vikunnar og sýndur var 2.hluti af jólafestivali Berglindar Pétursdóttur. Dúettinn Þú og ég taka lagið Hátíðarskap og Jóhanna Guðrún lokar þættinum ásamt eiginmanni sínum Davíð Sigurgeirssyni með laginu Löngu liðnir dagar af nýútgefinni jólaplötu Jóhönnu og jólasmellinum Jól alla daga. Hljómsveitin Albatross spilar undir.
- 13
11. desember 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þær Sigrún Hjálmtýsdóttir - Diddu stórsöngkona, Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur og Sigurður Þorri Gunnarsson útvarpsmaður. Gísli Marteinn fer yfir fréttir Vikunnar líkt og vaninn er og Berglind Jóla-Festival segir frá jólamat í þessum síðasta hluta Jólafestivalsins. Hljómsveitin Purumenn sýna örhelgileik og spila lagið Fyrir jól en hljómsveitina skipa þau Steinunn Eldflaug, Gunnar Ragnarsson og Tumi Árnason. Diddú slær svo síðasta tóninn í þessum lokaþætti Vikunnar fyrir jól með laginu Nú minnir svo ótal margt á jólin.
- 14
Árið með Gísla Marteini 2020
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða.
- 15
8. janúar 2021
Gestir Vikunnar í þessum fyrsta þætti ársins eru þau Davíð Þór Jónsson prestur og skemmtikraftur, Dóra Jóhannsdóttir leikkona og Vilhelm Netó leikari sem sló rækilega í gegn í Skaupinu 2020. Kaka ársins 2021 var valin í beinni útsendingu en Garðar Tranberg hjá Bakarameistaranum hneppti þann titil. Berglind Festival kannaði sögu kökunnar og Gísli Marteinn fór yfir það helsta í Fréttum Vikunnar. Jóhanna Rakel Jónasdóttir, annar meðlimur hljómsveitarinnar Cyber og Ásdís María Viðarsdóttir söngkona litu við í stutt spjall í lok þáttarins. Hljómsveitin Cyber og Ásdís lokuðu svo þættinum með lagatvennunni Starry night og Karaoke song.
- 16
15. janúar 2021
Gestir Vikunnar að þessu sinni eru Margrét Erla Maack fjöllistakona, Logi Geirsson íþróttamaður og peppari og Árni Páll Árnason fyrrverandi alþingismaður. Jón Jónsson og Guðrún Ýr Eyfjörð eða GDRN litu við í spjall áður en þau lokuðu þættinum með splunkunýju lagi, Ef ástin er hrein. Berglind Festival fór á stúana og rannsakaði líkur á eldgosi árið 2021.
- 17
22. janúar 2021
Gestir Vikunnar eru Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona, Vala Kristín Eiríksdóttir leikkona og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Guðni Ágústsson og Berglind Pétursdóttir litu í heimsókn og skáluðu fyrir þorranum. Þúsundir Íslendinga eru hluti af svokölluðu Múmínsamfélagi þar sem rædd eru mikilvæg mál eins og múmínbollar. Berglind kynnti sér málið. Síðast en ekki síst slaufaði söngkonan Kristín Sesselja þættinum með laginu Earthquake.
- 18
29. janúar 2021
Gestir Vikunnar að þessu sinni eru Héðinn Unnsteinsson, Óskar Jónsson leikstjóri og tónlistarkonan Emilíana Torrini, sem lokaði einnig þættinum með titillaginu úr leikritinu Vertu úlfur sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Festival kynnti sér dagleg störf í töfrageiranum.
- 19
5. febrúar 2021
Gestir þáttarins eru rithöfundurinn Einar Kárason og fjölmiðlafólkið Elín Hirst og Snæbjörn Ragnarsson. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Festival hitti nokkrar af vinsælustu hlaðvarpsstjörnum þjóðarinnar. Teitur Magnússon lokaði þættinum með laginu Líft í mars?
- 20
12. febrúar 2021
Gestir Vikunnar eru leikararnir Jóhann Sigurðarson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir og fjölmiðlakonan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir. Gísli Marteinn fer yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Festival fjallar um íslenskar talsetningar. Poppstjarnan Páll Óskar og Birnir loka þættinum með laginu Spurningar.
- 21
19. febrúar 2021
Gestir þáttarins eru leikarinn Hallgrímur Ólafsson, Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur og Brynjar Níelsson þingmaður. Gísli Marteinn fer yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Festival slóst í för með einhverjum reyndustu eftirhermum landsins. Tónlistarkonan Elín Hall lokar þættinum með ábreiðu á lagi Páls Óskars, Stanslaust stuð.
- 22
26. febrúar 2021
Gestir Vikunnar eru píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Friðrik Dór Jónsson tónlistarmaður. Berglind kannaði hæðir og lægðir í íslenskri auglýsingatónlist og Gísli Marteinn fór yfir helstu Fréttir Vikunnar. Ofursveitin Team Dreams lokaði þætti Vikunnar með laginu Imaginary love.
- 23
5. mars 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Matthías Tryggvi Haraldson sviðslistamaður og meðlimur hljómsveitarinnar Hatari, Sóley Tómasdóttir fyrrum borgarfulltrúi og Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir fjallaði um gönguskíðaæðið sem tröllríður landanum um þessar mundir. Tónlist kvöldsins var ekki af lakari endanum en Bubbi, Bríet og GDRN fluttu lagið Ástrós ásamt hljómsveit Guðmundar Óskars og kammerkór Aurora.
- 24
12. mars 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Björg Magnúsdóttir fjölmiðlakona, Baltasar Kormákur Baltasarsson kvikmyndagerðamaður og Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir kannaði áhrif jarðskjálfta á dýr á Íslandi og Jói Fel málaði mynd af Berglindi í beinni útsendingu. VÖK lokaði þættinum með laginu Lost in the Weekend.
- 25
19. mars 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau María Elísabet Bragadóttir rithöfundur, Hjörvar Hafliðason íþróttafréttamaður og Jóhann Alfreð Kristinsson útvarpsmaður og dómari og spurningahöfundur Gettu betur. Anna Svava Knútsdóttir uppistandari og viðskiptakona byrjaði þáttinn sem gestur en var kosin út í upphafi þáttar vegna gildandi sóttvarnarreglna. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir fór yfir sögu raunveruleikasjónvarps á Íslandi. RED RIOT lokaði þættinum en hljómsveitin er samstarf tónlistarkvennanna Hildar og Cell 7.
- 26
26. mars 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Patrekur Jaime Plaza raunveruleikastjarna og áhrifavaldur, Anna Svava Knútsdóttir uppistandari og viðskiptakona og Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir fór yfir Páskahátíðina eins og hún leggur sig. Ellen Kristjánsdóttir og John Grant lokuðu þættinum með hugljúfu lagi, Veldu stjörnu.
- 27
9. apríl 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Bergur Ebbi rithöfundur og uppistandari, Unnur Eggertsdóttir leikkona og Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrár- og ritsjóri sjónvarpsstöðvarinnar Hringbraut. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir setti sig í spor þeirra sem dvöldu á sóttvarnarhóteli nýverið. JóiPé, RAKEL og CeaseTone lokuðu þættinum með fyrsta sumarsmelli ársins, Ég var að spá.
- 28
16. apríl 2021
Gestir þáttarins þessa Vikuna voru þau Inga Sæland stjórnmálakona, Halldór Laxness Haldórsson rithöfundur og uppistandari og Lóa Björk Björnsdóttir sviðhöfundur og fjölmiðlakona. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og Berglind Pétursdóttir fjallaði um golfsumarið mikla sem er rétt handan við hornið. Raunveruleikastjarnan og tónlistarmaðurinn Bassi Maraj lokaði þættinum með látum.
- 29
23. apríl 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Ragnar Ísleifur Bragason, Edda Björgvinsdóttir og Sindri Sindrason. Gísli Marteinn fór yfir Fréttir Vikunnar og fékk Bríeti í lið með sér. Berglind Sumar-Festival fjallaði um sumardaginn fyrsta. Hljómsveitin BSÍ lokaði þættinum með flutningi á laginu Vesturbæjar Beach.
- 30
30. apríl 2021
Gestir þáttarins að þessu sinni voru þau Elísabet Brekkan, Didda skáldkona og Ragnar Kjartansson. Gísli fór að venju yfir helstu fréttir Vikunnar og Berglind Festival rannsakaði arkitektúr í Reykjavík. Emmsjé Gauti spjallaði við Gísla Martein og gesti þáttarins ásamt því að loka þættinum með flutning á laginu Tossi ásamt góðu gengi.
- 31
7. maí 2021
Gestir í lokaþætti vetrarins voru engar aðrar en Katrín Jakobsdóttir, Alma D. Möller og Kristín Jónsdóttir. Daði Freyr Eurovision-fari leit einnig við í stutt spjall. Litið var yfir farinn Vikuveg og Berglind Festival skautaði yfir viðburðarríkt ár Festivalsins. Aron Can lokaði svo vetrinum með pompi og prakt ásamt GDRN með flutningi á laginu Flýg upp.
- 1
6. september 2019
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Hjörvar Hafliðason, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Jakob Birgisson. Rannsóknarblaðakonan Saga Garðarsdóttir fer djúpt ofan í fréttirnar og Berglind Festival kynnist körlunum okkar. Hljómsveitin Himpsumhaps spilar sumarslagarann Lífið sem mig langar í.
- 2
13. september 2019
Stórleikarinn Hilmir Snær verður gestur ásamt Katrínu Oddsdóttur mannréttindalögfræðingi og Lóu Björk Björnsdóttur útvarpskonu og grínista. Berglind Festival verður á sínum stað og nokkrir þjóðþekktir einstaklingar spreyta sig á skemmtilegu verkefni. Í lok þáttar leikur Mugison lagið Murr Murr.
- 3
20. september 2019
Gestir kvöldsins í Vikunni eru Gísli Einarsson, Sóley Tómasdóttir og Bergur Ebbi Benediktsson. Gístli Marteinn fer yfir helstu fréttir vikunnar, Berglind Festival kannar geimrannsóknir og góðkunningi þjóðarinnar, Kristján Ólafsson, gefur góð ráð. Í lok þáttar flytjur Bríet nýtt lag sem heitir Esjan.
- 4
27. september 2019
Í þætti kvöldsins fara Einar Kárason, Margrét Pála Ólafsdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir yfir málefni vikunnar. Mattarræði verður okkur hugleikið, en Berglind Festival kannar matarræði landsmanna og Katrín Guðrún Tryggvadóttir, matargagnrýnandi, smakkar æta diska. Ellen Kristjánsdóttir flytur lag í lok þáttar.
- 5
4. október 2019
Grínistarnir Jón Gnarr og Pétur Jóhann Sigfússon eru gestir þáttarins ásamt Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur ráðherra. Berglind Festival gerir upp plastlausan September og Moses Hightower spila ljúfa tóna.
- 6
11. október 2019
Leikkonurnar Ilmur Kristjánsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir eru gestir þáttarins að þessu sinni auk Hr. Hnetusmjörs og Hr. Ólafs Ragnars Grímssonar. Berglind Festival heldur upp á afmæli þáttarins og tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir flytur lagið Draumaprinsinn.
- 7
18. október 2019
Gestir þáttarins að þessu sinni eru Andri Snær Magnason, Nanna Kristín Magnúsdóttir og Sigríður Klingenberg. Berglind Festival fer yfir alvarlegan faraldur sem nú geysar um land allt. Nýr liðsmaður Vikunnar, Máni Arnarsson, flytur pistil um sannleikann. Hljómsveitin Keflavík flytur svo lagið Inni í miðjunni að dansa.
- 8
25. október 2019
Gunnar Helgason, Sif Sigmarsdóttir og Steinþór H. Steinþórsson (Steindi) fara yfir málefni vikunnar og slá á létta strengi í þætti kvöldsins. Gísli Marteinn fer yfir hvað var helst í fréttum í vikunni og spyr áhugaverða vegfarendur um sína skoðun. Berglind Festival verður svo á sínum stað en að þessu sinni rekur hún sögu Hrekkjavökuhátíðarinnar. Hljómsveitin Sykur frumflytur svo nýtt lag í lok þáttar.
- 9
8. nóvember 2019
Gestir Gísla Marteins að þessu sinni eru Eva María Jónsdóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir og Gunnlaugur Helgason. Berglind Festival fer yfir sögu hinnar íslensku sjónvarpsstjörnu, Saga Garðarsdóttir rýnir í hitamál samtímans auk þess sem Ragnar Reykás lítur við. Um tónlistina að þessu sinni sér Una Schram.
- 10
15. nóvember 2019
Að þessu sinni er tungumálið hugleikið gestum Vikunnar auk frétta og dægurmála. En það eru einmitt þau Sjón, Karl Ágúst Úlfsson og Edda Andrésdóttir sem mæta í sófann til Gísla Marteins. Berglind Festival heldur áfram sögulegri yfirferð sinni um íslenskar sjónvarpsstjörnur og Between Mountains flytja fallegt lag.
- 11
22. nóvember 2019
Þáttur kvöldsins af Vikunni með Gísla Marteini er bæði beittur og skemmtilegur. Það eru þau Matthías Tryggvi Haraldsson, Björk Vilhelmsdóttir og Bubbi Morthens sem eru gestir þáttarins að þessu sinni en auk þeirra kíkir Andrean Sigurgeirsson í stutta heimsókn. Berglind Festival kynnir niðurstöður nýrrar rannsóknar um aukinn lestur Íslendinga. Tónlist kvöldsins er Bland í poka með Snorra Helgason í farabroddi.
- 12
29. nóvember 2019
Ari Eldjárn, Katrín Jakobsdóttir og Brynja Þorgeirsdóttir ræða málefni líðandi stundar á skemmtilegan hátt í þætti kvöldsins. Berglind Festival eyðir degi með Sigurði Inga Jóhannssyni ráðherra í tilefni tveggja ára afmælis ríkisstjórnarinnar. Nýr fréttaskýrandi Vikunnar, Vigdís Hafliðadóttir, greinir átakamál með jákvæðnina að leiðarljósi. Í lok þáttarins flytja svo söngkonurnar GDRN og Bríet gullfallegt lag.
- 13
6. desember 2019
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Ólöf Nordal, Ævar Þór Benediktsson og Bergþór Pálsson - en það er aldrei að vita hvort leynigestir mæti líka á svæðið. Berglind Festival kynnir sér starfshætti atvinnujólasveina og Valdimar leikur fallegt lag.
- 14
13. desember 2019
Í þætti kvöldsins fara Egill Helgason, Friðrik Dór, Hlédís Sveinsdóttir og Guðrún Eva Mínervudóttir bæði yfir málefni líðandi stundar og hvernig jólaundirbúningurinn gengur. Saga Garðarsdóttir færir þjóðinni sérstaka jólakveðju og Berglind Festival talar við fólk sem á það sameiginlegt að hafa verið kjörið manneskja ársins. Samúel Jón Samúelsson Big Band spilar svo ljúfa og „fönkí“ jólatónlist.
- 15
Árið með Gísla Marteini 2019
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir fara yfir árið sem er að líða og horfa til framtíðar. Gestir þáttarins eru sannarlega ekki af verri endanum: Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Katrín Tanja, Klemens Hannigan, Magnús Scheving, Árni Helgason, Bergsteinn Sigurðsson, Katrín Júlíusdóttir, Birta Abiba Þórhallsdóttir, Guðmundur Haukur Guðmundsson og fleiri. Völva Vikunnar (með Gísla Marteini) spáir í framtíðina og Atli Fannar fer yfir fréttir ársins. Tónlistaratriði þáttarins eru svo stórglæsileg en um þau sjá Bubbi og Paparnir annarsvegar og Auður og hljómsveit hinsvegar.
- 16
10. janúar 2020
Fyrsti þáttur ársins af Vikunni með Gísla Marteini var ekki af verri endanum. Handboltagoðsögnin Ólafur Stefánsson mætti með einhyrningahúfu, en með honum í sófanum voru stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson og þúsundþjalasmiðurinn Heiða Kristín Helgadóttir. Berglind Festival hitti gamla og nýja handboltakalla og Benni Hemmi Hemm frumflutti stórkostlegt nýtt lag við Davíðssálm 51.
- 17
17. janúar 2020
Gestir þáttarins að þessu sinni eru tónlistarmaðurinn Egill Ólafsson, Auður Jónsdóttir rithöfundur og listakonan Hrafnhildur Arnardóttir, einnig þekkt sem Shoplifter. Berglind Festival rýnir í Megxit málið svokallaða og Ham sjá um tónlistina.
- 18
24. janúar 2020
Það eru bráðskemmtilegir gestir í Vikunni í kvöld: Freyr Eyjólfsson, Helga Braga Jónsdóttir og Marta Nordal. Halldór Gylfason bætist svo til þeirra í sófann, en hann og Freyr eru einmitt saman í stuðsveitinni Geirfuglunum sem sjá um tónlistina í þetta sinn. Berglind Festival fer svo á kostum í ítarlegri rannsókn sinni á þorravenjum.
- 19
31. janúar 2020
Leikkonan góðkunna, Halldóra Geirharðsdóttir mætir í sófann í kvöld ásamt Kamillu Einarsdóttir, einum fyndnasta rithöfundi landsins, og Guðmundi Gunnarssyni, fráfarandi bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar. Berglind Festival kynnir sér jarðhræringar á Reykjanesi og Kælan mikla sér um tónlistaratriði kvöldsins. Þær breyta stúdíóinu í galdraheim og flytja lagið Næturblóm.
- 20
7. febrúar 2020
Í þætti kvöldsins er sérstakt stuð- og kvikmyndaþema. Gestirnir að þessu sinni eru leikarinn Björn Thors; Friðrik Þór Friðriksson, verðlaunaleikstjóri og Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas, einnig þekkt sem DD Unit, kvikmyndasérfræðingur. Hljómsveit allra landsmanna, Stuðmenn, byrja og enda þáttinn með mikilli sýningu.
- 21
14. febrúar 2020
Það er þungavigtarþáttur af Vikunni í kvöld. Gestirnir að þessu sinni eru Kristján Jóhannsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður. Nafni hans og náinn samstarfsmaður, Andri Freyr Hilmarsson, mun svo mæta og sjá um sérstaka spurningakeppni. Berglind Festival rannsakar móttökuhátíðir sigursælla íslendinga í tilefni af Óskarsverðlaunum Hildar Guðnadóttir. Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína, sér svo um tónlistaratriði kvöldsins.
- 22
21. febrúar 2020
Það eru frábærir gestir í Vikunni að þessu sinni. Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, nýráðinn Borgarleikhússtjóri og vinsælasta útvarpskona landsins: Vera Illugadóttir. Söngkonan frábæra, GDRN, bætist svo í sófann til þeirra áður en hún tekur lag af glænýrri plötu sinni. Berglind Festival beitir svo vísindalegri aðferð við rannsókn sína á persónuleikaprófum.
- 23
28. febrúar 2020
Andi Ragga Bjarna svífur yfir vötnum í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Gestir kvöldsins eru leikararnir Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Björgvin Franz Gíslason en auk þeirra í sófanum verður enginn annar en Björgvin Halldórsson. Katrín og Björgvin Franz munu svo syngja ásamt stórkostlegri hljómsveit sem spilaði margsinnis með Ragga í Borgarleikhúsinu. Berglind Festival verður að sjálfsögðu á sínum stað og skoðar málefni líðandi stundar með sínum einstaka hætti.
- 24
6. mars 2020
Gestir kvöldins í Vikunni með Gísla Marteini eru ekki af verri endanum. Það eru þau Salka Sól, KK og Alma Möller, landlæknir. Hver veit nema einhverjir leynigestir kíki líka í heimsókn. Sturla Atlas sér svo um tónlistaratriði kvöldsins og Berglind Festival kynnir sér Mottumars.
- 25
13. mars 2020
Stórleikarinn Ólafur Darri Ólafsson mætir í sófann í kvöld ásamt Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra og hinum einna sanna Helga Bjöss. Berglind Festival kynnir sér sérstakan innkaupalista yfirvalda vegna óvissuástandsins sem nú ríkir í samfélaginu. Tónlistaratriðið að þessu sinni er úr sýningunni Níu líf sem Borgarleikhúsið setur upp um þessar mundir um Bubba Morthens. Björn Stefánsson syngur ásamt stórkostlegri hljómsveit og bakröddum.
- 26
20. mars 2020
í þætti kvöldsins af vikunni með Gísla Marteini eru stórkostlegir gestir. Grínistarnir Ari Eldjárn og Edda Björgvins munu leika á alls oddi auk Þórlindar Kjartanssonar. Í seinni hluta þáttarins bætist svo í hópinn enginn annar en forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson Berglind Festival verður á sínum stað og skoðar í þetta sinn heimaskrifstofur. Tónlistin í kvöld verður einkar ljúf, en það eru Lay Low og Valdimar sem flytja lagið Ég lifi í draumi með frábærri hljómsveit.
- 27
27. mars 2020
Gestir Gísla Marteins í Vikunni í kvöld eru Bogi Ágústsson, Nína Dögg Filippusdóttir og Víðir Reynisson. Eins og alltaf verður létt og skemmtileg stemmning í bland við umræður um málefni líðandi stundar. Þáttur kvöldsins er þó eins og samfélagið allt undir áhrifum ástandsins sem uppi er vegna Covid-faraldursins. Þess vegna munum við nota og skoða fjarskiptatækni í þætti kvöldsins. Við lofum óvæntum uppákomum. Teitur Magnússon mun orna okkur um hjartarætur í tónlistaratriði kvöldsins.
- 28
3. apríl 2020
TBA
- 29
17. apríl 2020
Gestir Gísla að þessu sinni eru Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir sem tók nýlega sæti á þingi. Auk þeirra mætir svo enginn annar en Þórólfur Guðnason. Berglind rannsakar breytingarnar sem hafa átt sér stað undanfarið í samfélaginu og Emmsjé Gauti sér um tónlistina.
- 30
24. apríl 2020
Það er frábært þáttur af Vikunni í kvöld. Gestirnir að þessu sinni eru þau Hera Hilmarsdóttir, stórleikkona, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar. Berglind Festival skoðar bökunaræðið sem hefur gripið landann og býr til sinn eigin raunveruleikaþátt. Tónlistarmaðurinn Krassasig flytur svo glænýtt og skemmtilegt lag í lok þáttar.
- 31
1. maí 2020
Gestir kvöldins í Vikunni með Gísla Marteini eru þau Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, Guðjón Valur Sigurðsson og Unnur Anna Valdimarsdóttir. Auk þeirra er útlit fyrir einn góðan leynigest. Pönktríóið Gróa sér um tónlistina og Berglind Festival gerir greinargóða úttekt á sögu kröfugöngunnar í tilefni fyrsta maí.
- 32
8. maí 2020
Gísli Marteinn fer yfir málefni líðandi stundar með frábæru fólki í þætti kvölsins af Vikunni. Það eru þau Baltasar Kormákur, Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson sem byrja þáttinn en svo bætist söng- og sviðslistakonan Selma Björnsdóttir við. Selma sér auk þess um tónlistaratriði kvöldsins sem verður geggjað! Berglind Festival mun svo kynna sér sundmenningu og sögu sunds á Íslandi.
- 33
15. maí 2020
Gestir kvöldsins í Vikunni eru þau Hugleikur Dagsson, Þórdís Gísladóttir og Inga Lind Karlsdóttir. Clubdub halda uppi stuðinu með glænýju lagi og Berglind Festival talar við lífsglaða sérfræðinga um málefni líðandi stundar.
- 34
22. maí 2020
Í lokaþætti Vikunnar fyrir sumarfrí munum við líta yfir þennan ótrúlega vetur sem að baki er með Hallgrími Helgasyni og Fanney Birnu Jónsdóttur. Berglnd Festival mun svo rifja upp sín bestu augnablik í vetur. Í loka þáttarins býður tónlistarmaðurinn Auður okkur upp á magnað atriði.
- 1
5. október 2018
Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leikkona, Friðrik Dór Jónsson, tónlistarmaður, Kolbrún Bergþórsdóttir, blaðamaður, og Dagur Hjartarson, rithöfundur, ræddu um það hvað haustið er fagurt, Ellý, afmæli hrunsins og margt fleira. Konráð Jónsson leit við og reyndi að sannreyna það hvort hægt sé að borða hálfan snúð í einum munnbita. Atli Fannar kafaði í helstu málefni sumarsins sem aldrei kom og Berglind kannaði hvort fólk muni hvar það var þegar Geir bað Guð að blessa Ísland. Hjálmar fluttu lagið ,,Hættur að anda".
- 2
12. október 2018
Í þættinum ræðir Gísli Marteinn við Sigríði Maríu Egilsdóttur, varaþingmann, Maríu Thelmu Smáradóttur, leikkonu, Víking Heiðar Ólafsson, einleikara og Egill Helgason, dagskrárgerðarmann. Hannes Þór Halldórsson, knattspyrnumaður, kíkir í heimsókn. Atli Fannar kryfur misyfirvegaða umræðu um laxeldismál, stráin við braggann og fleiri hitamál vikunnar. Berglind Festival fór og heimsótti mathallir borgarinnar, en hverjum krók og kima höfuðborgarinnar virðist hafa verið breytt í Mathöll. Í lok þáttar flytur hljómsveitin Ylja lagið ,,Hættu að gráta hringaná“ af nýútkominni plötu sinni ,,Dætur".
- 3
19. október 2018
Í þættinum ræðir Gísli Marteinn við Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa, Boga Ágústsson fréttamann, Þórdísi Gísladóttur rithöfund og Jón Ólafsson tónlistarmann. Atli Fannar kryfur helstu hitamál vikunnar og Berglind Festival kannar styttingu vinnuvikunnar. Í lok þáttar flytja Joey Christ og Jón Jónsson lagið Helgarfrí.
- 4
26. október 2018
Jón Gnarr, Ilmur Kristjánsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Emmsjé Gauti eru gestir kvöldsins í Vikunni. Þau ræða meðal annars kvennafrí, skaupið og uppistand. Atli Fannar fer yfir hvernig vikan var hjá Sigríði Anderssen og býður Pawel Bartoszek í spjall. Berglind Festival fræðist um tölvuleikinn sem allir eru að tala um: Fortnite. Í lok þáttar flytur John Grant lagið ,,Is he strange".
- 5
2. nóvember 2018
Gísli Örn Garðarsson, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Benedikt Erlingsson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar kryfur vikuna sem leið: Hvern á að klóna? Og hver verður næsti spyrill Gettu betur? Berglind Festival er sérstakur gesur þáttarins í tilefni þess að fyrsti hluti Fullveldisfestivalsins er sýndur í kvöld. Í lok þáttar flytur Bríet lagið Carousel.
- 6
9. nóvember 2018
Hallgrímur Helgason, Bryndís Björgvinsdóttir, Halldór Gylfason og Vala Kristín Eiríksdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fjallar um helstu mál vikunnar. Þar á meðal áhrifavalda á alþingi, Wow air og ólíka forseta. Annar þáttur Fullveldis Festivalsins er sýndur. Í lok þáttar flytja Magnús og Jóhann ásamt Árstíðum lagið Álfar.
- 7
16. nóvember 2018
Ásdís Halla Bragadóttir, Ármann Jakobsson, Logi Már Einarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fjallar um helstu mál vikunnar sem var að hluta til í öfugum furðuheimi. Sýndur verður Fullveldis Festival pt. III. Í þetta skiptið tekur Berglind fyrir árin 1958-1978 þar sem Bítlarnir, handritin og eldgosið í Heimaey koma fyrir. Gísli Marteinn ræðir við Ólöfu Jöru Skagfjörð sem fer með hlutverk Sally Bowles í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á söngleiknum Kabarett. Í lok þáttar flytur Ólöf Jara ásamt hljómsveit lagið Lífið er Kabarett.
- 8
23. nóvember 2018
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Dóri DNA og Jakob Birgisson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fjallar um umræðu vikunnar á internetinu og glímir við vitmunaskekkju og framistöðuvanda. Sýndur verður Fullveldis Festival pt. IV. Í þetta skiptið tekur Berglind fyrir árin 1978-1998 : Þorskastríðið, Evrovision, óðaverbólgu og EES. Gísli Marteinn ræðir við Jónas Sig sem í lok þáttar tekur lagið Dansiði ásamt hljómsveit. Lagið er af nýrri plötu Jónasar sem kemur út í dag. Platan heitir Milda hjartað.
- 9
30. nóvember 2018
Charlotte Bøving, Bergur Ebbi og Katrín Oddsdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar kveður þingmennina, sem drulluðu yfir samstarfsfólk sitt, með þeirra eigin orðum. Sýndur verður lokaþáttur Fullveldis Festivals. Í þættinum tekur Berglind fyrir árin 1998-2018. Berglind Festival kemur sem gestur og þjófstartar hátíðarhöldum vegna fullveldisafmælisins. Í lok þáttar kemur einvala lið tónlistarmanna og flytur lagið Vikivaki. Þau koma saman í tilefni Dags íslenskrar tónlistar sem verður 6. desember.
- 10
7. desember 2018
Elín Hansdóttir, Sigursteinn Másson, Björt Ólafsdóttir og Eiríkur Guðmundsson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar reynir að fjalla um eitthvað annað en Klaustursmálið. Berglind Festival er farin að huga að jólunum og jólasiðum. Bjartar Sveiflur taka lagið í lok þáttar og kalla leynigest inná til að koma áhorfendum í sannkallað jólaskap.
- 11
14. desember 2018
Unnur Ösp Stefánsdóttir, Sigurjón KJartansson og Þorleifur Arnarsson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar skilur hvorki upp né niður í pólitíkinni og Berglind Festival leitast við að svara öllum þeim spurningum sem brenna á landanum í aðdraganda jóla. Svala Björgvinsdóttir og Baggalútur flytja jólalagið Sex í lok þáttar.
- 12
Árið með Gísla Marteini 2018
Árið gert upp með lykilfólki ársins 2018. Fólk ársins, lag ársins, tíðindi ársins og „Hvur þremillinn! ársins“. Í þættinum kemur fram fjöldi gesta meðal annars Skúli Mogensen, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hera Hilmarsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Klausturs-Bára Halldórsdóttir, Prins póló, Guðmundur Ingi Guðbrandsson og margir fleiri.
- 13
1. febrúar 2019
Jón Ársæll Þórðarson, Dröfn Ösp Snorradóttir Rozas, Kristín Soffía Jónsdóttir og Sóli Hólm eru gestir Vikunnar þetta föstudagskvöldið. Atli Fannar kveður SnapChat og Rögnu Fossberg. Berglind Festival gerði útekt á kuldanum sem herjar á landsmenn þessa dagana. Í lok þáttar flutti Flóni lagið Frá mér af plötunni Floni2.
- 14
8. febrúar 2019
Hjörtur Jóhann Jónsson, Elísabet Jökulsdóttir og Logi Bergmann eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar setur upp álpappírshattinn og Berglind Festival kannar legu landsins á smáfasteignamarkaðnum. Benni, Fannar og Björg taka sér stund frá undirbúningi Söngvakeppninnar og kíkja í sófann til Gísla. Í lok þáttar fáum við að njóta tónlistar GDRN.
- 15
15. febrúar 2019
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Baltasar Kormákur og Friðrik Weisshappel eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fer yfir helstu mál vikunnnar. Meðal annars viðkvæman minnihlutahóp, hárnetaskort og rómantík. Berglind Festival fór á stúfana og kannaði hvernig Valentínusardagurinn gekk. Nú magnast spennan í Ófærð. Vikan hitti nokkra sérfræðinga sem eru með kenningar um það hvernig þáttaröðin endar. Í lok þáttar flytur Auður lagið Siðblindur.
- 16
1. mars 2019
Friðgeir Einarsson, Saga Garðarsdóttir, Svandís Svavarsdóttir og Margrét Kristmannsdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fer yfir helstu mál vikunnnar og Berglind Festival fagnar afmæli bjórsins á Íslandi. Við höfum ekki alveg kvatt Ófærð. Vikan fékk Ingar E. Sigurðsson og Katrínu Halldóru Sigurðardóttur, eða Ásgeir og Guðrúnu, til að lesa 7 minniháttar en mjög merkileg smáatriði um þættina. Í lok þáttar flytja Hjaltalín nýjasta lagið sitt Baronesse.
- 17
8. mars 2019
Hugleikur Dagsson, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Svanhildur Hólm og Magnús Geir Þórðarson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fer yfir helstu mál vikunnnar og Berglind Festival kannar áhrif hækkandi sólar á mannfólkið. Í lok þáttar flytur hljómsveitin Vök lagið Spend the love.
- 18
15. mars 2019
Helgi Seljan, KK, Arnþrúður Karlsdóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar kannar hvað það merkir að stíga til hliðar og Berglind Festival fór á stúfana og kynnti sér hundarækt og hungasýningar. Í lok þáttar flytja Úlfur Úlfur lagið Hraði.
- 19
29. mars 2019
Ragnar Kjartansson, Aníta Briem og Ragnar Alexandersson, betur þekktur sem RAX, eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fer yfir helstu mál vikunnar og Berglind Festival tekur stöðuna á ástandinu í landinu í kjölfar undanfarinna frétta. Mun Ísland einangrast? Við fáum nasasjón af sköpunargleðinni á hönnunarmars. Birta Rós Brynjólfsdóttir frá hönnunarteyminu Flétta sýnir muni og Sonja Bent kemur með ilmsturtu Nordic argan í myndver. Í lok þáttar flytja Mannakorn lagið Einhverstaðar, einhvertíman aftur.
- 20
5. apríl 2019
Heiða Kristín Helgadóttir, Halldóra Geirharðsdóttir, Auðunn Blöndal og Ragnar Helgi Ólafssson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar fer yfir helstu mál vikunnar og spyr: hvað gerðist ekki í þessari viku? Berglind Festival fór á stúfana og kynnti sér kranavísitöluna. Í lok þáttar flytur Kristín Anna ásamt hljómsveit lagið Heartly Matter.
- 21
12. apríl 2019
Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Örn Ólafsson og Óskar Jónasson eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar er á sínum stað og fer yfir helstu mál vikunnar og Berglind Festival fór á stúfana og kynnti sér meindýravarnir borgarinnar. Í lok þáttar flytja sigurvegarar Músíktilrauna, hljómsveitin Blóðmör, lagið Líkþorn.
- 22
26. mars 2019
Dagur Sigurðsson, Steinunn Sigurðardóttir, Jóhann Kristófer Stefánsson og Birgitta Jónsdóttir eru gestir kvöldsins í Vikunni. Atli Fannar er á sínum stað og spyr stóru spurninganna. Berglind Festival fer á stúfana og kannar hvort allir séu ekki örugglega að kolefnisjafna flugin sín. Í lok þáttar flytja Teitur Magnússon og Æðisgengið lagið Hverra manna?
- 23
3. maí 2019
Bjarni Benediktsson, Brynhildur Guðjónsdóttir og Salka Sól Eyfeld eru gestir kvöldsins í Vikunni. Auk þeirra eru Matthías Tryggvi Haraldsson, Klemens Nikulásson Hannigan og Einar Stefánsson frá Hatara gestir hjá Gísla Marteini. Atli Fannar er á sínum stað og Berglind Festival fer á stúfana og kynnir sér Hatara. Hvaðan kom Hatari? Í lok þáttar flytja GÓSS lag Bubba Morteins: Kossar án vara. GÓSS skipa Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius. Um undirleik sér Tómas Jónsson.
- 1
13. október 2017
TBA
- 2
20. október 2017
TBA
- 3
27. október 2017
TBA
- 4
3. nóvember 2017
TBA
- 5
10. nóvember 2017
TBA
- 6
17. nóvember 2017
TBA
- 7
24. nóvember 2017
TBA
- 8
1. desember 2017
TBA
- 9
8. desember 2017
TBA
- 10
15. desember 2017
TBA
- 11
Árið með Gísla Marteini 2017
Sérstök áramótaútgáfa Vikunnar með Gísla Marteini þar sem góðir gestir gera upp árið sem er að líða. Hverjar eru manneskjur ársins? Hvaða straumhvörf urðu á árinu? Hverjir voru mikilvægustu atburðirnir? Fjöldi álitsgjafa mætir til leiks frá ólíkum sviðum þjóðlífsins.
- 12
2. febrúar 2018
TBA
- 13
9. febrúar 2018
Gestir þáttarins að þessu sinni eru þau Guðmundur Andri Thorsson, Salka Sól, Helga Arnardóttir, Logi Pedro og Guðmundur Þórður Guðmundsson.
- 14
16. febrúar 2018
Gísli Marteinn fékk til sín Björgu Magnúsdóttur, Benedikt Erlingsson og Óttarr Proppé og ræddu saman um liðinna viku. Atli Fannar og Berglind Festival létu sig ekki vanta en í þetta sinn spjallaði Berglind við gesti og gangandi um túrista. Sara Sigmundsdóttir, einn fremsti krossfitleikari Íslands, kom og ræddi við Gísla um feril sinn og næstu skref. Í lok þáttar brá Óttarr sér í gervi Dr. Spock og flutti, með samnefndri hljómsveit, lagið Smyglar smjöri.
- 15
23. febrúar 2018
Gísli Marteinn fékk til sín þrjá frábæra gesti í sófann. Þau Þorlákur Kristinsson Morthens (Tolli) myndlistarmaður með meiru, Lilja Alfreðsdóttir ráðherra og Kristín Þóra Haraldsdóttir leikkona spjölluðu við Gísla um málefni líðandi stundar. Sigurður Hilmarsson, stofnandi Siggi's Skyr kom í stólinn og ræddi við Gísla. Tónlistin var í þessu sinni í höndum GDRN og band. Atli Fannar og Berglind Festival létu sig ekki vanta.
- 16
2. mars 2018
Í þættinum ræddi Gísli Marteinn við Ara Eldjárn, Heru Hilmarsdóttur og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur. Berglind Festival kíkti á undirbúning Söngvakeppni sjónvarpsins í Laugardalshöllinni og hitti þar nokkrar stjörnur sem komu henni í Eurovision gírinn. Pálmi Gunnarsson söngvari, tónskáld og fleira mætti með bassann sinn og tók nokkur stef ásamt því að spjalla við Gísla. Í lok þáttar kom Teitur Magnússon ásamt dj. flugvél og geimskip og fluttu lagið Lífsspeki.
- 17
9. mars 2018
Sólmi Hólm, Svandís Svavarsdóttir ásamt Bubba Morthens mættu í studio til Gísla Marteins og ræddu um liðna viku. Bubbi tók upp gítarinn og flutti lagið Syneta. Atli Fannar og Berglind Festival létu sig ekki vanta en þau slógu saman liði og fjölluðu um símanotkun ökumanna undir stýri. Í lok þáttar frumsýni KSÍ teaserinn fyrir nýju landsliðstreyjuna og Páll Óskar og leikhópur Rocky Horror úr Borgarleikhúsinu fluttu lagið Kynsnillingur. Hann Gísli náði nokkrum góðum orðum uppúr þeim Braga Valdimar og Mörtu Nordal.
- 18
16. mars 2018
Í þessum dúndur þætti fékk Gísli Marteinn til sín þau Gunnar Helgason, Höllu Helgadóttur og Sverri þór Sverrisson. En fjallað var mikið um KSÍ, Hönnunarmars og alemmna pólitík í þættinum og þar lét Atli Fannar sig alls ekki vanta. Björn Steinar Blumenstein var að brugga vodka í þættinum en það var partur af Hönnunarmars. Sólveig Anna Jónsdóttir settist í stólinn hjá Gísla Marteini eftir að Berglind Festival fræddist um það hvað gerist við skattyfirlitið eftir því er skilað. Í lok þáttar fluttur stelpurnar úr Between Mountains lagið Into the dark.
- 19
23. mars 2018
TBA
- 20
6. apríl 2018
TBA
- 21
13. apríl 2018
Í þættinum fékk Gísli Marteinn til sín þrjá gesti, Birgittu Jónsdóttur, Jóhann Alfreð Kristinsson og Brynhildi Ólafsdóttir í sófann og þar ræddu þau m.a. um þáttinn Úti, barneignarfrí og Mark Zuckerberg. Frímann Gunnarsson kom sér inn í upphaf þáttar og kynnti þáttinn Borgarsýn Frímans. Atli Fannar og Berglind Festival létu sig ekki vanta en í þetta sinn fjallaði Berglind Festival um sæta hunda. Í lok þáttar spjallaði Gísli Marteinn við Kára Stefánsson og poppóperu hópurinn Vakúm fluttu lagið Allt í megagóðu með tilheyrandi stuði.
- 22
20. apríl 2018
TBA
- 23
27. apríl 2018
TBA
- 1
7. október 2016
TBA
- 2
14. október 2016
TBA
- 3
21. október 2016
TBA
- 4
28. október 2016
TBA
- 5
4. nóvember 2016
TBA
- 6
11. nóvember 2016
TBA
- 7
18. nóvember 2016
TBA
- 8
25. nóvember 2016
TBA
- 9
2. desember 2016
TBA
- 10
9. desember 2016
TBA
- 11
Árið með Gísla Marteini 2016
TBA
- 12
27. janúar 2017
TBA
- 13
3. febrúar 2017
TBA
- 14
10. febrúar 2017
Gestir Gísla Marteins eru þau Bubbi Morthens, Þóra Tómasdóttir og Hjörvar Hafliðason ásamt rithöfundinum Auði Övu. Í lok þáttarins flytja svo Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar ljúfa tóna.
- 15
17. febrúar 2017
Í sófanum verða þau Hera Hilmarsdóttir, Jón Ársæll, Hallgrímur Helgason og Björt Ólafsdóttir. Hljómsveitin Amabadama tekur síðan lagið ásamt því að tveir ferfætlingar munu sniglast um settið.
- 16
Vikan #12stig
Vikan með Gísla Marteini með öðru sniði en venjulega. Ásamt skemmtilegri yfirreið yfir fréttir vikunnar, verða keppendur í Söngvakeppninni teknir tali, þeir spurðir spjörunum úr um Söngvakeppnina og Eurovision í léttri keppni. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verður spyrill en Gísli Marteinn dómari og spurningahöfundur.
- 17
Vikan #12stig
Vikan með Gísla Marteini með öðru sniði en venjulega. Ásamt skemmtilegri yfirreið yfir fréttir vikunnar, verða keppendur í Söngvakeppninni teknir tali, þeir spurðir spjörunum úr um Söngvakeppnina og Eurovision í léttri keppni. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verður spyrill en Gísli Marteinn dómari og spurningahöfundur. Meðal gesta hjá Gísla Marteini þau Ótarr Proppé , Guðmundur Andri Guðmundsson og Vala Kristín Eiríksdóttir og hljómsveitin HAM tekur lagið.
- 18
Vikan #12stig
Vikan með Gísla Marteini með öðru sniði en venjulega. Ásamt skemmtilegri yfirreið yfir fréttir vikunnar, verða keppendur í Söngvakeppninni teknir tali, þeir spurðir spjörunum úr um Söngvakeppnina og Eurovision í léttri keppni. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir verður spyrill en Gísli Marteinn dómari og spurningahöfundur. Meðal gesta hjá Gísla Marteini eru þau Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Felix Bergsson og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Einnig tekur hljómsveitin Sturla Atlas lagið.
- 19
17. mars 2017
Gestir Gísla Marteins að þessu sinni eru þau Víkingur Heiðar Ólafsson, Björg Magnúsdóttir, Illugi Gunnarsson og Hildur Yeoman. Einnig mun Védís Hervör taka lagið ásamt hljómsveit.
- 20
31. mars 2017
Gestir Gísla Marteins að þessu sinni eru þau Steiney Skúladóttir, Vilhjálmur Bjarnason og Ólafur Egilsson og Sunna Tsunami. Einnig mun Snorri Helgason taka lagið.
- 21
7. apríl 2017
Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þau Halla Oddný Magnúsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Gói eða Guðjón Davíð Karlsson og Baltasar Kormákur. Einnig mun tónlistarmaðurinn Högni flytja ómþýða tónlist.
- 22
21. apríl 2017
Gestir kvöldsins að þessu sinni eru þau Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Svala Björgvinsdóttir, Dóri DNA og Logi Einarsson. Einnig stígur tónlistarmaðurinn Aron Can á svið.
- 1
2. október 2015
- 2
9. október 2015
- 3
16. október 2015
- 4
23. október 2015
- 5
30. október 2015
- 6
6. nóvember 2015
- 7
13. nóvember 2015
- 8
20. nóvember 2015
- 9
27. nóvember 2015
- 10
4. desember 2015
- 11
Árið með Gísla Marteini 2015
- 12
29. janúar 2016
TBA
- 13
5. febrúar 2016
TBA
- 14
12. febrúar 2016
TBA
- 15
19. febrúar 2016
TBA
- 16
26. febrúar 2016
TBA
- 17
11. mars 2016
TBA
- 18
18. mars 2016
TBA
- 19
1. apríl 2016
TBA
- 20
8. apríl 2016
TBA
- 21
15. apríl 2016
TBA
- 22
22. apríl 2016
TBA
- 23
29. apríl 2016
TBA
Svipaðar myndir
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!














