Eldeyjan og Björgunarafrekið við Látrabjarg

Eldeyjan og Björgunarafrekið við Látrabjarg (1949)

1949

Bíótekið kynnir: Tvær stórkostlegar heimildamyndir! Sýndar kl 15:00 sunnudaginn 29.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

Bíótekið kynnir: Tvær stórkostlegar heimildamyndir! Sýndar kl 15:00 sunnudaginn 29. janúar 2023. Sérstakur viðburður: Spjall við áhorfendur eftir sýninguna Eldeyjan (1973) Eldeyjan er gullfalleg heimildamynd eftir Ásgeir Long, Ernst Kettler og Pál Steingrímsson sem markaði upphafið að ævilöngu samstarfi þeirra með stofnun framleiðslufyrirtækisins Kvik. Myndin er um náttúruhamfarir og tímamótaatburð í sögu þjóðarinnar en hún hlaut gullverðlaun á alþjóðlegri kvikmyndahátíð, The Atlanta International Film Festival í Bandaríkjunum. Liðin eru 50 ár frá eldgosinu í Heimaey sem varði í um fimm mánuði og eyðilagði nær þriðjung byggðarinnar en alls grófust tæplega 300 hús undir hrauni og ösku. Björgunarafrekið við Látrabjarg (1949) Myndin segir frá því þegar meðlimir í björgunarsveitinni Bræðrabandinu undir stjórn Þórðar frá Látrum björguðu breskum skipbrotsmönnum af togaranum Dhoon árið 1947 eða fyrir 75 árum. Óskar Gíslason var við tökur veturinn 1948 til að kvikmynda leikna heimildamynd um afrekið þegar fréttir bárust af því að breski togarinn Sargon hefði strandað í aftakaverði í Patreksfirði. Þustu menn á staðinn til aðstoðar, þar á meðal Óskar Gíslason með myndavélina. Þannig varð kvikmynd Óskars að raunverulegri heimildamynd um samtakamátt sveitunga við erfið björgunarstörf við hrikalegar aðstæður. Myndin var gefin út á fjölda tungumála og sýnd víða um heim.

Svipaðar myndir

Eldeyjan
Eldeyjan
1973
Sami leikstjóri: Páll Steingrímsson
Einkunn
Töfraflaskan
Töfraflaskan
1951
Sami leikstjóri: Óskar Gíslason
Einkunn
Yfir Kjöl
Yfir Kjöl
1982
Líka heimildarmynd
Einkunn
Ölli
Ölli
2013
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn
Apausalypse
Apausalypse
2021
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn
EyríkiÍ bíó
Eyríki
2026
Líka heimildarmynd, íslenskt
Einkunn

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!