Draumar, konur og brauð
2024
Frumsýnd: 21. apríl 2024
90 MÍNÍslenska
Á töfrandi hringferð um fallega ísland, kynnumst við kraftmiklum konum, sem reka einstök kaffihús hringinn í kringum landið en líka söngkonu, sem er að skrifa handrit og samferðakonu hennar.
Svana söngkona kemur við á litla kaffihúsinu við víkina í leit að hattinum sínum. Þar kemst hún að því, að VIP úr menningarelítunni í Reykjavík verður heiðursgestur... Lesa meira
Á töfrandi hringferð um fallega ísland, kynnumst við kraftmiklum konum, sem reka einstök kaffihús hringinn í kringum landið en líka söngkonu, sem er að skrifa handrit og samferðakonu hennar.
Svana söngkona kemur við á litla kaffihúsinu við víkina í leit að hattinum sínum. Þar kemst hún að því, að VIP úr menningarelítunni í Reykjavík verður heiðursgestur á Sólstöðuhátíð sveitarinnar eftir viku.
Svana ákveður í skyndi að skrifa nú nýja útgáfu af leikritinu sínu, „Í hennar sporum“, fara hringferð um Ísland og stíga í spor kvenna, semreka kaffihús á landsbyggðinni. Hún freistarþess að bjarga listamanns ferli sínummeð þessu móti og ná að sýna Millu, formanni Menningarnefndarinnar, afraksturinn á hátíðinni.
Hún býður Agnesi líffræðingi far og saman koma þær við á 5 kaffihúsum og kynnast þar konunum sem þau reka, draumum þeirra og dagdraumum.
Frásagnarmáti myndarinnar er í anda töfra-raunsæis.Ásamt því að fylgjast með Svönu og Agnesi fara hringinn þá rifjum við upp þjóðsögur og minni landsins. Tónlist spilar stóran þátt í verkinu.
Agnar Már Magnússon, tónskáld semur stefin en einnig á Una Stefánsdóttir tvö frumsamin lög og við hlýðum á nýja útsetningu á gömlu Þjóðhátíðarlagi Magnúsar Eiríkssonar, svo eitthvað sé nefnt.... minna