Bratz

Bratz (2007)

Bratz the movie

"Get ready. Get glam. Get real."

1 klst 50 mín2007 1 álit notenda

Yasmin, Jade, Sasha og Cloe hafa verið bestu vinkonur eins lengi og þær muna eftir og nú eru þær tilbúnar að takast á við nýjan og spennandi heim gagnfræðaskóla.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

9 einkunnir á Kvikmyndir.is

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
6 áraBönnuð innan 6 ára
Ástæða:OfbeldiOfbeldi

Söguþráður

Yasmin, Jade, Sasha og Cloe hafa verið bestu vinkonur eins lengi og þær muna eftir og nú eru þær tilbúnar að takast á við nýjan og spennandi heim gagnfræðaskóla. Hingað til hefur ekkert getað komið upp á milli þeirra en það á heldur betur eftir að breytast þegar þær byrja í nýja skólanum. Þar ræður Meredith, dóttir skólastjórans, ríkjum og hún hefur ákveðið að skipta öllum nemendum skólans í mismunandi klíkur. Svo mikið tangarhald hefur hún á nemendunum að enginn þorir að standa uppi í hárinu á henni og meira að segja Bratz stelpurnar láta ógnarstjórn hennar yfir sig ganga. Jade byrjar að hanga með vísindanördunum, Cloe eyðir öllum stundum með vinum sínum úr fótboltanum, Sasha verður ein af sjálfumglöðu klappstýrunum og Yasmin er skilin ein eftir með tónlistina sína. Það er svo ekki fyrr en á lokaári þeirra í skólanum að þær ranka við sér og átta sig á því hvað hefur komið yfir þær og hvað það hefur kostað þær. Í kjölfarið ákveða þær að hrista rækilega upp í hlutunum en mæta þá auðvitað mikilli andstöðu frá Meredith sem nýtir sér öll sín sambönd til að missa ekki völdin í skólanum.

Svipaðar myndir

Camp Rock
Camp Rock
2008·IMDb 5.3
Líka gaman
Disney+
Einkunn
Nancy Drew
Nancy Drew
2007·IMDb 5.9
Líka gaman
Einkunn
Bolt
Bolt
2008·IMDb 6.8
Líka gaman
Einkunn

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Álit notenda (1)

Fyrst þegar ég heyrði að það væri að koma út Bratz bíómynd varð ég alls ekki bjartsýnn um gæði myndarinnar. Samt sem áður ákvað ég að bjóða fallegustu stelpu sem ég hef séð …

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Framleiðendur

MGA EntertainmentUS
Crystal Sky PicturesUS
Arad ProductionsUS
LionsgateUS