Two Days, One Night
2014
(Deux jours, une nuit)
Hún hefur 40 klukkustundir til að bjarga starfinu
95 MÍNFranska
96% Critics 89
/100 Deux jours, une nuit hefur hlotið fullt hús stjarna hjá mörgum af þekktustu gagnrýnendunum og var tilnefnd til Gullpálmans á Cannes og Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem besta myndin. Hún var ennfremur framlag Belga til Óskarsverðlaunanna í ár.
Þegar Sandra, sem er gift og tveggja barna móðir, snýr aftur til vinnu sinnar eftir erfið veikindi kemst hún að því að til stendur að segja henni upp. Hún grípur til óvenjulegra ráða til að missa ekki vinnuna.