Fjällbackamorden: Ljusets drottning (2013)
Ljósdrottningin
"Leyndardómar og morð"
Jólin nálgast og á Lúsíudeginum 13.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →
Bönnuð innan 12 ára
HræðslaSöguþráður
Jólin nálgast og á Lúsíudeginum 13. desember kemur í ljós að unga konan sem leika átti Lúsíu við messu í kirkjunni í Fjallbäcka er horfin sporlaust. Ljósdrottningin er þriðja myndin af fimm í sjónvarpsmyndaröð sem byggð er í kringum persónurnar sem sænska glæpasögudrottningin Camilla Läckberg hefur skapað í sögum sínum. Svíar halda upp á Lúsíudaginn þann 13. desember, en hann er helgaður ungri kristinni stúlku sem var myrt fyrir trú sína árið 304 eftir Krist. Þegar rithöfundurinn Erica Falck fer ásamt eiginmanni sínum í kirkju þennan dag til að taka þátt í Lúsíuhátíðinni kemur í ljós að unga konan sem leika átti Lúsíu og vera táknmynd hennar er horfin. Erica uppgötvar að innan safnaðarins eru í gangi hatrammar deilur sem ef til vill tengjast hvarfi stúlkunnar og ákveður að hella sér í rannsókn málsins ...
Svipaðar myndir
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar


Aðrar myndir sem handritshöfundur
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Framleiðendur



































