Náðu í appið

Left Behind 2014

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Frumsýnd: 3. október 2014

Some were saved, and some were...

Enska

Án nokkurs fyrirvara hverfa milljónir manna um alla Jörðina. Allt sem verður eftir eru fötin þeirra og munir ... og ótrúleg skelfing. Hvörfin valda því að ómönnuð farartæki lenda í árekstrum og brenna, um alla Jörðina. Neyðarlið um alla plánetuna eru í rúst. Út um allt eru umferðarhnútar, uppþot og gripdeildir í borgum. Enginn getur hjálpað og enginn... Lesa meira

Án nokkurs fyrirvara hverfa milljónir manna um alla Jörðina. Allt sem verður eftir eru fötin þeirra og munir ... og ótrúleg skelfing. Hvörfin valda því að ómönnuð farartæki lenda í árekstrum og brenna, um alla Jörðina. Neyðarlið um alla plánetuna eru í rúst. Út um allt eru umferðarhnútar, uppþot og gripdeildir í borgum. Enginn getur hjálpað og enginn er með svör við því sem gerðist. Á augabragði hefur Jörðin sogast inn í svartnætti. Mitt í öllu þessu reynir Ray Steel, flugmaður, að róa farþega sína sem sáu ástvini sína hverfa fyrir framan augun á sér. Hann þarf einnig að reyna ða lenda skemmdri vél sinni, en allir flugvellir eru í tómri óreiðu og fullir af brennandi flugvélaflökum, og á sama tíma hefur hann áhyggjur af fjölskyldu sinni og vonar að hann fái að sjá hana aftur. Buck Willims, er heimsfrægur blaðamaður er fastur í flugvélinni, og vill reyna að skilja hvað gerðist, hvaða atburður þetta er sem er sá mannskæðasti í sögu heimsins. Chloe Steele, dóttir Ray, er á Jörðu niðri, að leita að móður sinni og bróður. Heimurinn er í einni ringulreið og nú þarf hún að fara heim í heimi þar sem örvænting og ofsi ráða ríkjum. Þetta er saga Fögnuðarins, saga þeirra sem voru skildir eftir ...... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn