Náðu í appið
Bönnuð innan 6 áraÍ myndinni er ljótt orðbragð

Shout 1991

Fannst ekki á veitum á Íslandi

Two Hearts, One Beat. / A time for romance, A time for rebellion, A time for Rock N' Roll

89 MÍNEnska

Jack Cabe er tónlistarmaður árið 1955. Hann leggur á flótta í Texas eftir að hafa myrt mann meðan á upptökum á lagi í stúdíói stóð. Í tilraun til að sleppa undan lögreglunni kemur hann sér fyrir í the Benedict School for Boys, þar sem hann er ráðinn sem tónlistarkennari af skólastjóranum Eugene Benedict. Í skólanum þá kynnir hann hina nýju rokktónlist... Lesa meira

Jack Cabe er tónlistarmaður árið 1955. Hann leggur á flótta í Texas eftir að hafa myrt mann meðan á upptökum á lagi í stúdíói stóð. Í tilraun til að sleppa undan lögreglunni kemur hann sér fyrir í the Benedict School for Boys, þar sem hann er ráðinn sem tónlistarkennari af skólastjóranum Eugene Benedict. Í skólanum þá kynnir hann hina nýju rokktónlist fyrir hinum uppreisnargjarna Jesse Tucker, og ekki nóg með það þá eru fljótlega allir unglingarnir byrjaðir að smella fingrum við þessa "tónlist djöfulsins", í staðinn fyrir að spila lúðrasveitarlög eftir John Philip Sousa. Jack lendir upp á kant við Eugene vegna þessa, en hann er lítið gefinn fyrir taktinn í blús og rokki. Og eins og það sé ekki nóg, þá hefur Jesse ákveðið að reyna að heilla Sara, hina laglegu dóttur Eugene. Á sama tíma glímir Jack við sín eigin vandamál. Lögreglan leitar hans, og hann býr sig undir að flýja yfir í annað ríki. En nú líður að skólatónleikunum og hann vill ekki bregðast nemendum sínum. Á hann að halda kyrru fyrir og vera á tónleikunum og eiga á hættu að vera handtekinn, eða reyna að sleppa undan réttvísinni og flýja. ... minna

Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn