The Jungle Radio

The Jungle Radio (2009)

1 klst 30 mín2009

Kvikmyndin The Jungle Radio leiðir áhorfandann langt inn í frumskóga Níkaragva, þar sem femínistinn Yamileth Chaverría hefur stofnað útvarpsstöð í einstökum tilgangi: að fordæma heimilisofbeldi...

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →
Öllum leyfðÖllum leyfð

Söguþráður

Kvikmyndin The Jungle Radio leiðir áhorfandann langt inn í frumskóga Níkaragva, þar sem femínistinn Yamileth Chaverría hefur stofnað útvarpsstöð í einstökum tilgangi: að fordæma heimilisofbeldi gegn konum og börnum sem er einkar algengt í landinu. Enda þótt Yamileth hafi sjálfri verið hótað ofbeldi margoft veigrar hún sér ekki við að hallmæla mönnum sem beita ofbeldi. Stuttu eftir að fellibylurinn Mitch reið yfir landið árið 1998 stofnaði Yamileth útvarpstöðina Palabra de Mujer eða Raddir kvenna. Áhrif fellibylsins voru mikil og fjöldi þorpa í Níkaragva einangraðist frá umheiminum. Engu að síður gat fólkið komið skilaboðum til fjölskyldna sinna og vina í gegnum útvarpsstöðina. En útvarpsstöðin hennar Yamileth gegndi öðru og stærra hlutverki en að koma í stað síma. Í daglegum þáttum sínum, Skilaboðanornin, ávítar hún gerendur heimilisofbeldis (og kynferðisofbeldis) og nefnir þá með nafni. Með því tekur hún jafnframt afstöðu gegn réttarkerfinu í Níkaragva, þar sem nær aldrei koma fram ákærur vegna heimilisofbeldis, jafnvel þótt slíkum málum ljúki stundum með dauðsfalli. Yamileth neitar að láta stöðva sig, jafnvel þó að hún hafi oft fengið líflátshótanir. Eins og hún orðar það sjálf: „Ef þeir skjóta mig í beinni útsendingu munu allir verða vitni að því.“

Svipaðar myndir

Senna
Senna
2010·IMDb 8.4
Líka heimildarmynd
Einkunn
Earth
Earth
2009·IMDb 7.9
Líka heimildarmynd
Einkunn
Frozen Planet
Frozen Planet
2011·IMDb 9.0
Líka heimildarmynd
Einkunn
The 11th Hour
The 11th Hour
2007·IMDb 7.2
Líka heimildarmynd
Einkunn
Human Planet
Human Planet
2011·IMDb 9.0
Líka heimildarmynd
Einkunn
Miroir noir
Miroir noir
2008·IMDb 8.0
Líka heimildarmynd
Einkunn

Aðalleikarar

Álit notenda

Engin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!

Umfjöllun af öðrum miðlum

Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!

Verðlaun

🏆

FIDH Prize-Festval des Libertés 2010 First Prize-Filmfestival Espiello VIII Boltaña.